154. löggjafarþing — 31. fundur,  14. nóv. 2023.

framlag fyrirtækja til byggingar varnargarðs.

[13:54]
Horfa

Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir (P):

Forseti. Í gær voru samþykkt lög sem komu á nýjum skattstofni á allar fasteignir landsins, þar á meðal þorra allra heimila í landinu, til að standa straum af kostnaði við að reisa varnargarð utan um tvö stöndug fyrirtæki. Orkuverð í Svartsengi telst sannarlega til gríðarlega mikilvægra innviða fyrir bæði Grindavík og Reykjanesið allt. En það breytir því ekki að þessi fyrirtæki eru bæði með töluverðan hagnað í farteskinu. Því vil ég spyrja hæstv. ráðherra út í undirbúning frumvarpsins sem gert var að lögum í gær: Kom það til tals og kom það til greina af hálfu ríkisstjórnarinnar að óska eftir sérstöku framlagi frá þessum fyrirtækjum til að standa straum af kostnaði af uppbyggingu þessa varnargarðs með einum eða öðrum hætti?