154. löggjafarþing — 31. fundur,  14. nóv. 2023.

Almannavarnaástand á Reykjanesskaga, munnleg skýrsla dómsmálaráðherra.

[14:14]
Horfa

dómsmálaráðherra (Guðrún Hafsteinsdóttir) (S):

Virðulegi forseti. Hér flyt ég skýrslu um almannavarnaástand á Reykjanesskaga. Í upphafi vil ég segja að hugur minn og íslensku þjóðarinnar er hjá íbúum Grindavíkur. Það er mikilvægt að við tökum öll höndum saman til að styðja Grindvíkinga. Það hefur verið huggun í því að sjá íslensku þjóðina taka utan um Grindvíkinga sem og að sjá fumlaus viðbrögð viðbragðsaðila í gríðarlega krefjandi aðstæðum.

Ef við lítum til jarðhræringanna sýndu líkanareikningar í upphafi, föstudagskvöldið 10. nóvember, að kvikuflæði inn í ganginn hafi verið 5.600 m³ á sekúndu en dregið hefur hratt úr innrennslinu og í gær var rennslið líklega um 30–50 m³ á sekúndu. Það er ögn meira en í fyrri gosum og þýðir að það er minni þrýstingur í kvikuganginum en ef það kemur til eldgoss er hægt að búast við því hvar sem er á kvikuganginum. Skjálftavirkni á umbrotasvæðinu hefur verið nokkuð stöðug frá miðnætti 11. nóvember. Veðurstofan hefur einbeitt sér sérstaklega að svæðinu í og við Grindavík og heldur úti sérstakri vöktun fyrir viðbragðsaðila sem sinna aðgerðum á staðnum. Merki um hægari landbreytingar og minni skjálftavirkni voru fyrir þrjú síðustu gos á Reykjanesskaga og því er nú tími aðgæslu.

Óvissan er mikil og erfið fyrir íbúa Grindavíkur og okkar bíður gríðarstórt verkefni fram undan. Grindvíkingar þurfa nú að læra að haga bæjarlífi sínu utan bæjarins og til þess þurfa þeir styrk samfélagsins alls. Ljóst er að miklar skemmdir hafa orðið á vegum, lögnum, innviðum og öðrum mannvirkjum í og við Grindavík. Þessar skemmdir hafa orðið til þess að loka hefur þurft vegum og hlutar svæða í Grindavík eru án heits vatns og rafmagns. Viðgerðir standa nú yfir eftir því sem unnt er og öruggt þykir en ljóst er að bilanir sem þessar hafa áhrif á önnur kerfi utan Grindavíkur. Þar nefni ég leka í lögnum heits vatns í Vogum í dæmaskyni. Víða eru umtalsverðar skemmdir á jarðvegi, sprungur og jarðsig og sigdalur hefur myndast í vestanverðri Grindavík.

Undanfarna daga hefur verið unnið að björgun nauðsynja og verðmæta af heimilum jafnt sem fyrirtækjum. Staðið var að björgunaraðgerðum í austurhluta Grindavíkur á sunnudag og í gær stóðu yfir umfangsmiklar björgunaraðgerðir um alla Grindavík. Gert var ráð fyrir að íbúar úr hluta bæjarins fengju að fara inn á heimili sín í gær en síðan var ákveðið að íbúar á stærra svæði en ákveðið var í fyrstu fengju einnig fara inn á heimili sín og bjarga því sem bjarga mátti. Bæði lögreglan og Landsbjörg hafa sagt að þessar aðgerðir hafi gengið vel en að sjálfsögðu þarf að ákveða umfang og framkvæmd aðgerða með hliðsjón af stöðu og þróun jarðhræringa og öryggissjónarmiða.

Hvað varðar atvinnustarfsemi hefur verið orðið við beiðni fyrirtækja að því leyti sem unnt er og telst öruggt um að sinna nauðsynlegum aðgerðum með tilliti til órofinnar starfsemi. Þetta eru t.d. aðgerðir til að fyrirbyggja tjón vegna skorts eða skerðinga á rafmagni eða vöntun á daglegri þjónustu. Þeim tilmælum hefur verið beint til allra starfseininga almannavarnakerfisins að skrásetja, staðsetja og ljósmynda skemmdir eftir því sem unnt er og miðla þeim upplýsingum til samhæfingarmiðstöðvar almannavarna. Ef gæfan verður með okkur varðandi staðsetningu eldgossins þá mun það verða gríðarstórt sameiginlegt átak okkar allra, stjórnvalda, sveitarfélaga, íbúa og fyrirtækja, að endurreisa Grindavíkurbæ og hlúa að íbúum bæjarins.

Á sama tíma þurfum við að huga að langtímaöryggi á svæðinu. Það gerum við t.d. með því að auka viðbúnað með áframhaldandi gerð hættumats og viðbragðsáætlana en jafnframt með byggingu mannvirkja sem verja mikilvæga og ómissandi innviði. Í því ljósi er afar ánægjulegt að frumvarp til laga um vernd mikilvægra innviða á Reykjanesskaga hafi verið samþykkt seint í gær á Alþingi. Nú rétt í þessu tók ég ákvörðun á grundvelli laganna um að ráðist yrði í framkvæmd byggingar varnargarða til varnar orkuverinu í Svartsengi. Sú ákvörðun hefur verið tilkynnt ríkislögreglustjóra sem mun strax hefjast handa við að reisa varnargarðinn. Það er okkar von að varnargarðurinn reynist ómetanleg vörn við þeim ógnum sem steðja að mikilvægum og ómissandi innviðum á þessu svæði. Þrátt fyrir að skammur tími hafi verið til stefnu hefur málið verið unnið í samráði við helstu hagaðila eftir því sem kostur gafst.

Í því samhengi má nefna að markvisst hefur verið unnið að því að almannavarnakerfið í heild sé sem best undirbúið fyrir næstu eldsumbrot á Reykjanesskaganum. Er það gert með því að stjórnvöld og aðrir hagaðilar hugi vel að eigin áhættu, áfallaþoli og viðbragðsgetu. Vinna hefur staðið yfir um þó nokkurn tíma en þó er enn nokkuð langt í land. Ef litið er 60 ár aftur í tímann er ljóst að náttúruhamfarir eru tíðari nú en þá. Við erum því miður að sjá fleiri eldgos en við höfum áður gert og meiri öfgar í veðri sem hafa meiri áhrif en áður á íslenskt samfélag. Við Íslendingar höfum verið í nokkurn veginn viðvarandi almannavarnaástandi undanfarin ár en það hefur líka skilað okkur mikilli og ómetanlegri þekkingu og reynslu sem nýtist okkur vel þegar kemur að því að takast á við margs konar vá.

Við getum rétt ímyndað okkur að allar starfseiningar almannavarnakerfisins eru undir afar miklu álagi. Það er gríðarlega mikilvægt að við hlúum vel að almannavarnakerfi okkar og fólkinu sem í því starfar nú sem endranær með því að styrkja það sem og leita leiða til að auka skilvirkni þess. Við erum í dag með eitt fremsta almannavarnakerfi heims og af því getum við verið stolt. Við erum hins vegar lítil þjóð í stóru og hrjóstrugu landi og því þurfum við að leita leiða til að styrkja kerfið enn frekar. Á þessum tímum, á meðan við erum að berjast við þessa náttúruvá, er sú vinna í fullum gangi.

Í samræmi við stefnu stjórnvalda í almannavarna- og öryggismálum frá árinu 2021 vinnur dómsmálaráðuneytið nú að því að efla grunnskipulag almannavarna í löggjöf og framkvæmd, m.a. með heildarendurskoðun almannavarna. Markmiðið með heildarendurskoðuninni er að skoða alla þætti skipulagsins þannig að almannavarnakerfið okkar eflist enn frekar og verði sem best í stakk búið til að takast á við hvers konar ógnir. Einnig er brýnt að skýra enn frekar hlutverk og ábyrgð allra þeirra sem vinna að almannavörnum og að almannavarnalögin verði enn skýrari og aðgengilegri öllum.

Við munum ekki komast hjá því að fara í þessa allsherjarendurskoðun á kerfinu. Við þurfum að stækka kerfið, fá fleiri að borðinu og þannig styrkja það. Reynsla undanfarinna ára hefur sýnt okkur að fyrirbyggjandi aðgerðir og undirbúningur geta dregið úr áhættu og verndað líf og eignir. Við þurfum að vera reiðubúin, undirbúa okkur á öllum sviðum samfélagsins og samhæfa okkur þannig að við getum tryggt öruggara umhverfi fyrir okkur sjálf og komandi kynslóðir.