Almannavarnaástand á Reykjanesskaga, munnleg skýrsla dómsmálaráðherra.
Virðulegi forseti. Ég tek undir með hv. þingmanni. Við berum öll þá von í brjósti að þessi framkvæmd, sem manni finnst vera einhvern veginn svo lítilvæg í ljósi krafta náttúrunnar sem þarna eru undir — þetta er það minnsta viðbragð sem við sjáum núna til að tryggja byggð, tryggja að lífsviðurværi geti verið óskorað á Reykjanesi. Við vitum ekki hvar kvika kemur hugsanlega upp. Við munum gera allt sem í okkar valdi stendur til að verja byggðina í Grindavík ef þess er nokkur kostur og við munum gera allt sem í okkar valdi stendur til að standa vörð um orkuverið í Svartsengi sem tryggir íbúum á öllu Reykjanesi, 30.000 manns, öryggi og búsetuskilyrði til að búa á Suðurnesjum.
Hv. þingmaður veltir því upp (Forseti hringir.) hvort þjóðin standi með Grindvíkingum. Íslendingar munu standa með Grindvíkingum og öllum íbúum á Reykjanesi í þessum hamförum.