154. löggjafarþing — 31. fundur,  14. nóv. 2023.

Almannavarnaástand á Reykjanesskaga, munnleg skýrsla dómsmálaráðherra.

[14:30]
Horfa

Guðmundur Ingi Kristinsson (Flf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Hugur minn er svo sannarlega hjá Grindvíkingum því að fyrsta íbúðin sem ég eignaðist var á Túngötu í Grindavík, þá var ég rúmlega tvítugur aldri. Seinni íbúðin, þegar ég stækkaði við mig, var á Hellabraut. Ég fluttist tvítugur til Grindavíkur til að starfa sem lögregluþjónn, fyrst í Grindavík og síðan í Keflavík. Ég hafði löngu áður komið til Grindavíkur sem unglingur, spilaði með Grindavíkurliðinu í fótbolta sem unglingur og vann í fiski og á sjó. Ég á marga ættingja og vini í Grindavík. Þess vegna er hugur minn hjá þeim og ég óttast um hvað getur skeð. Við erum búin að samþykkja núna, og það er sem betur fer byrjað að hugsa um varnargarða. En ég spyr mig: Hvernig eiga þessir varnargarðar að vera? Ætlum við að ryðja hrauni til að verjast hrauni, hraunrennsli? Ég sé það ekki alveg fyrir mér vegna þess að það þarf einhvern veginn að styrkja grunn þessara varnargarða.

Ég spyr því hæstv. dómsmála hvort það sé búið að hugsa út í það hvernig á að styrkja grunninn. Eru einhver plön um að setja vírbundnar steinblokkir, grjótgarða? Hvernig er hugsað um grunninn á þessum varnargörðum og hvernig er hugsað um uppbyggingu á þeim og hvernig eiga þeir að virka? Svo langar mig líka að vita: Í Vestmannaeyjagosinu tóku þeir upp á því að sprauta vatni á hraunið til að kæla það. Er eitthvert svoleiðis plan líka í Grindavík? Þegar kemur að Grindavík er auðvitað hægt nota sjó en er eitthvað verið að tryggja vatn til að geta þá líka notað þá reynslu sem fékkst Vestmannaeyjum, að kæla niður hraunrennslið með vatni?