154. löggjafarþing — 31. fundur,  14. nóv. 2023.

Almannavarnaástand á Reykjanesskaga, munnleg skýrsla dómsmálaráðherra.

[14:37]
Horfa

Gísli Rafn Ólafsson (P) (andsvar):

Frú forseti. Mig langar að byrja á því að þakka hæstv. ráðherra fyrir að koma hér og gefa skýrslu um þessi mikilvægu mál. Eins og hæstv. ráðherra benti á erum við bara rétt á byrjunarreit þegar kemur að því að takast á við allt það sem hefur verið að gerast í Grindavík. Við erum ekki einu sinni farin að sjá fyrir endann á þeim hamförum sem þar ganga yfir. Það er margt sem þarf að gera fyrir Grindvíkinga, ekki bara verja orkuverið heldur tryggja afkomu, tryggja þeim húsnæði, tryggja börnunum skólavist og ýmislegt annað. Verkefnalistinn er sennilega ansi langur akkúrat núna. Á slíkum neyðartímum er mikilvægt að við vinnum öll vel saman og langar mig því að spyrja hæstv. ráðherra hvort hún hyggist hafa virkt þverpólitískt samráð og samstarf hér á þingi um næstu skref í öllum þeim málefnum sem eru tengd Grindavík, ekki bara samstarf þegar kemur að því að greiða atkvæði um einhverja hluti heldur um það að búa til þær lausnir og þá hluti sem þarf að gera fyrir Grindvíkinga.