Almannavarnaástand á Reykjanesskaga, munnleg skýrsla dómsmálaráðherra.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrirspurnina. Það er algerlega óhugsandi og erfitt að setja sig í spor fólks sem fær innan við klukkustund til að yfirgefa heimili sitt og allt sem því er kærast og keyrir í myrkrinu út í óvissuna og veit ekki hvað tekur við. Það er okkar hér á Alþingi Íslendinga að létta á þeim mikla kvíða sem hlýtur að sitja í brjóstum fólks með því að tala mjög skýrt um afkomu fólks, húsnæði og hvernig við Íslendingar ætlum að grípa íbúa Grindavíkur í þessum skelfilegu aðstæðum. Ég efa það ekki að við öll hér á Alþingi Íslendinga stöndum saman í því verkefni öll sem eitt. Það mun ekki standa á mér að vera í mikilli samvinnu við þingið í þessum verkefnum sem fram undan eru. Eins og ég sagði áðan erum við núna í óvissunni. Það er verið að bíða. Líkur á gosi eru enn gríðarlega miklar. Það eru enn miklar líkur á að þær hörmungar sem gerðust á föstudag geti orðið meiri. Því er svo mikilvægt að í öllum þessum málefnum, alveg sama hvort það snýr að almannavörnum, félagslega þættinum, afkomuöryggi, húsnæðismálum eða öðru, að við séum öll í þessu húsi í þéttu samtali og stöndum saman í því að finna lausnir.