Almannavarnaástand á Reykjanesskaga, munnleg skýrsla dómsmálaráðherra.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir spurninguna. Eins og ég nefndi í máli mínu fyrr í dag þá erum við búin að vera í viðvarandi almannavarnaástandi núna í nokkur ár og það reynir á alla viðbragðsaðila. Og eins og ég sagði líka fyrr í dag þá erum við fámenn þjóð í stóru og kannski oft og tíðum erfiðu landi. Þess vegna erum við alveg gríðarlega heppin að við erum með tæplega 5.000 manns sem eru virk í björgunarsveitum hringinn í kringum landið, sjálfboðaliða sem eru tilbúnir dag eða nótt að rjúka út í hvaða veður eða hvaða óvissu sem er til að bjarga verðmætum og mannslífum. Maður hefur vitaskuld áhyggjur af því að eftir svona langan tíma hafi reynt verulega á fólk og þetta er erfitt. Það er líka erfitt sálrænt fyrir sömu manneskjurnar að standa í stafni ár eftir ár til að tryggja öryggi landsmanna. Við höfum haft áhyggjur af þessu í ráðuneytinu og það er að hluta til þess vegna sem við höfum ákveðið að endurskoða lög um almannavarnir sem, ef ég fer rétt með, hafa ekki tekið breytingum síðan 2008. Sú vinna hófst í sumar og það er verkefnahópur að störfum sem er að fara hringinn í kringum landið og hitta viðbragðsaðila, hvort sem það er lögregla, björgunarsveitir eða aðrir, einmitt með það að augnamiði að styrkja kerfið okkar enn frekar.