154. löggjafarþing — 31. fundur,  14. nóv. 2023.

Almannavarnaástand á Reykjanesskaga, munnleg skýrsla dómsmálaráðherra.

[14:49]
Horfa

dómsmálaráðherra (Guðrún Hafsteinsdóttir) (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég vil bæta við fyrra andsvar mitt að það er búið að vera í gangi núna í langan tíma ráðuneytisstjórahópur sem hefur samhæfingarhlutverki að gegna varðandi þessa náttúruvá sem ég nefndi hér áðan sem hefur verið viðvarandi. Sömuleiðis hefur verið á vegum Stjórnarráðsins innviðahópur. Hann er að vinna mjög kröftuglega einmitt að því að bregðast við, eins og hér var nefnt, svona stórum verkefnum eins og ef við missum hitaveituna. Stefna var sett 2021 varðandi almannavarnir og í kjölfarið fór þessi vinna af stað, þessi heildarendurskoðun laganna. Lögin voru sett 2008. Ráðherra gerir ekki ráð fyrir því að leggja fram breytingar á almannavarnalögum á þessu þingi heldur að gera það á þingi næsta haust.