154. löggjafarþing — 31. fundur,  14. nóv. 2023.

almannavarnaástand á Reykjanesskaga, munnleg skýrsla dómsmálaráðherra.

[14:51]
Horfa

Bergþór Ólason (M) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir að koma hér til þessarar umræðu um skýrslu sína. Mig langar til að spyrja hæstv. ráðherra um tvennt. Í fyrsta lagi kom fram í fyrirspurnatíma áðan í svörum hæstv. forsætisráðherra að fyrir lægi skýrsla um greiningu innviða og áhættuþátta frá 2022 varðandi Reykjanesið og jarðhræringar þar og m.a. er sá varnargarður sem nú er verið að hefjast handa við partur af þeim sviðsmyndum sem þar eru lagðar fram. Hæstv. forsætisráðherra vísaði til þess að tillaga um aðgerðir skyldi koma frá almannavörnum. Ég verð að viðurkenna að mér þætti nú ekki galið að ríkisstjórnin færi í sjálfstæða greiningu á því hvort það séu tillögur í téðri skýrslu sem væri skynsamlegt að vinna svona meira tímanlega heldur en við erum að finna okkur í núna varðandi varnargarðinn. Þessi tillaga um varnargarð hefur legið fyrir lengi, frumhönnun hans unnin 2021, ef ég skil það rétt, og síðan lendum við í þessu mikla tímahraki núna við að koma þessu á koppinn þó að viðvaranir um þessar sviðsmyndir hafi verið taldar líklegar um allnokkurt skeið.

Ég vil spyrja hæstv. ráðherra hvort það sé fleira í þessari greiningu og þessari skýrslu frá 2022 sem við í þinginu ættum með sanni að taka upp og vinna þá með skipulegri hætti sem getur bæði tryggt haganlegri útfærslur, lægri kostnað og meiri öryggistilfinningu. Ég spyr hæstv. ráðherra: Er fleira í þessari skýrslu sem við ættum að taka til meðferðar með svipuðum hætti og gert var hér í gær varðandi öryggisgarðinn?