154. löggjafarþing — 31. fundur,  14. nóv. 2023.

almannavarnaástand á Reykjanesskaga, munnleg skýrsla dómsmálaráðherra.

[14:55]
Horfa

Bergþór Ólason (M) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra svarið. Í seinna andsvari langar mig til að spyrja hæstv. ráðherra út í það með hvaða hætti ríkisstjórnin hefur rætt að heildartjón verði bætt. Nú liggur fyrir geta Náttúruhamfaratryggingar Íslands eins og eignasafn hennar er um síðustu áramót. Það eru ýmsir sjóðir, varasjóðir og aðrir sjóðir, viðlagasjóðir sem eru til í ríkiskerfinu, en ef verstu sviðsmyndir raungerast þá fer því fjarri að svigrúm sé til að standa undir því tjóni sem orðið gæti. Hvernig sér hæstv. ráðherra fyrir sér að því verði mætt? Verður það með frekari skattahækkunum eins og samþykktar voru hér í gær í tengslum við varnargarðsmálið eða verður það með aðhaldi hjá ríkissjóði þannig að það verði raunverulega forgangsraðað með tilliti til hagsmuna þeirra sem nú eiga um sárt að binda á Grindavíkursvæðinu?