Almannavarnaástand á Reykjanesskaga, munnleg skýrsla dómsmálaráðherra.
Virðulegur forseti. Í okkar landi elds og ísa skiptir miklu máli að þjóðin standi saman í baráttunni gegn náttúruhamförum. Okkar hugur er með Grindvíkingum á þessari stundu. Það er nær ómögulegt að setja sig í spor þeirra, að þurfa að yfirgefa heimili sín í óvissu um hvort og hvenær þau geti snúið aftur. Við þurfum að leggja okkar að mörkum til að styðja við Grindvíkinga og gera allt sem í okkar valdi stendur til að aðstoða þá í gegnum þessa erfiðu tíma. Við Íslendingar stóðum saman þegar gaus í Vestmannaeyjum árið 1973 og við munum standa saman með Grindvíkingum. Við höfum lært af þeim aðgerðum sem þá var gripið til og vitum betur í dag hvaða aðgerðir virka vel og hvaða aðgerðir henta illa. Við vitum hversu mikilvægt það er að hlúa að börnum á tímum sem þessum og hvernig þarf að skipuleggja viðbragð þegar kemur að þeirra andlegu heilsu. Það er mikilvægt að reyna eftir bestu getu að tryggja að skólabekkir og árgangar geti haldið hópinn.
Þegar hefur orðið töluvert tjón á innviðum í Grindavík og jafnvel þótt allt þróist á besta veg munum við þurfa að aðstoða Grindvíkinga vegna þess tjóns sem þegar hefur orðið, bæði andlega og fjárhagslega. Við þurfum að tryggja að upplýsingar berist til fólks með skilvirkum hætti um réttindi þeirra og skyldur. Grindvíkingar lifa í óvissu um hvort þeir geti snúið aftur til síns heima, hvort þeir fái greidd laun eða atvinnuleysisbætur, hvort þeir þurfi að halda áfram að greiða af lánum, tryggingum, fasteignagjöldum og öðru vegna heimila þeirra. Þessa óvissu ber okkur að skýra sem fyrst og þar tel ég að skýra beri allan hugsanlegan vafa Grindvíkingum í hag. Við þurfum að skipuleggja og hefja vinnu við að útvega Grindvíkingum tímabundið húsnæði og jafnframt gera áætlanir um langtímahúsnæði. Við þurfum að ganga til verka til að hægt verði að tryggja raforku og húshitun á Suðurnesjum og við þurfum að setja aukið raforkuöryggi í forgang. Við verðum einnig að yfirfara þau lög og þær reglur sem gilda um náttúruhamfaratryggingar.
Samheldni íslensku þjóðarinnar skiptir sköpum á tímum sem þessum. Ólafur Jóhannesson sagði við upphaf eldgossins í Heimaey að það væri, með leyfi hæstv. forseta, „skylda samfélagsins að gera allt, sem unnt væri, til að tryggja stöðu Vestmannaeyinga og bæta þeim tjón þeirra.“ Þjóðin yrði að jafna þessu tjóni á sig, hér væri um sameiginlegan vanda þjóðarinnar að ræða og til yrði að koma alger samábyrgð þjóðfélagsins. Þessi orð mættu vera okkur veganesti inn í næstu daga, vikur og mánuði því þau eiga jafnvel við í dag og þá.
Mig langar að koma hér aðeins inn á þátt bankanna. Á flestum ef ekki öllum húsum hvíla fasteignalán og nú hvíla þau á húsum sem jafnvel eru óíbúðarhæf eða eiga hugsanlega eftir að fara undir hraun. Samkvæmt frétt Heimildarinnar í morgun eru fyrstu skref bankanna að bjóða Grindvíkingum upp á frystingu fasteignalána. Í fréttinni stendur, með leyfi forseta:
„Stóru viðskiptabankarnir þrír bjóða Grindvíkingum nú allir upp á frystingu fasteignalána, sem felur í sér að ekki er greitt af lánum, en vextir og verðbætur bætast við höfuðstól.“
Í alvöru? Samkvæmt nýlegum greiðsluseðlum hefur fólk verið að greiða 10.000 krónur inn á lánið og 490.000 krónur í vexti. Þessi tíuþúsundkall verður sem sagt frystur og 490.000 kr. bætt ofan á lánið í hverjum mánuði. Búa engir af stjórnendum bankanna yfir nokkurri samkennd og finna þeir aldrei fyrir samfélagslegri ábyrgð sinni? Frysting sem felur í sér að ekki er greitt af lánum en vextir og verðbætur bætast við höfuðstól, er verra en ekki neitt. Fólk stendur mikið verr að vígi að þessari frystingu lokinni en það gerir nú þegar, með skuld sem hefur hækkað og, í atburðum eins og þessum, jafnvel með óíbúðarhæfa eign sem hefur safnað á sig skuldum í vikur eða mánuði. Þetta var ein af „lausnunum“ sem fólki í vanda var beint í eftir hrun og það fór alltaf illa. Ef þetta tilboð bankanna sýnir fram á og staðfestir eitthvað, er það það að samkennd, sómakennd og samfélagsleg ábyrgð er ekki til hjá stjórnendum þeirra. Við sem samfélag eigum meira inni hjá bönkunum en þetta. Þeir verða einfaldlega að fella niður greiðslur á þessum lánum þar til mál taka að skýrast. Það væri smá bragur á því og í raun það minnsta sem þeir geta gert fyrir fólk í gríðarlega erfiðum aðstæðum.
Það er samábyrgð þjóðfélagsins að berjast gegn náttúruvá þeirri sem nú er fyrir hendi í Grindavík, tryggja öryggi landsmanna og bæta það tjón sem kann að hljótast eða þegar hefur hlotist. Það hefur verið fallegt að fylgjast með samhug þjóðarinnar í garð Grindvíkinga á undanförnum dögum. Við erum fámenn þjóð og það þekkja flestir einhvern í Grindavík sem færir atburði sem þessa nær okkur öllum. Íslendingar hafa áður sýnt samúð sýna í verki og við munum gera það aftur í gegnum þessa erfiðleika. Ég er líka þakklát þeim mikla samhug sem ríkir meðal þingmanna hér í dag og treysti því að sá samhugur leiði til samvinnu í þágu Grindvíkinga Því, svo ég vitni aftur í orð Ólafs Jóhannessonar við upphaf eldgossins í Heimaey og uppfæri þau aðeins, þá er það skylda samfélagsins að gera allt, sem unnt er, til að tryggja stöðu Grindvíkinga og bæta þeim tjón þeirra.