154. löggjafarþing — 31. fundur,  14. nóv. 2023.

Almannavarnaástand á Reykjanesskaga, munnleg skýrsla dómsmálaráðherra.

[15:23]
Horfa

Guðbrandur Einarsson (V):

Virðulegur forseti. Við ræðum hér stöðu almannavarna á Reykjanesskaga sem er grafalvarleg þessa dagana. Ég vil byrja á því að þakka fyrir að þessi umræða eigi sér stað og að þingmenn séu upplýstir um stöðuna frá fyrstu hendi.

Þingið samþykkti í gær frumvarp sem fól í sér heimild til uppbyggingar varnargarða og gerð varnarfyllinga yfir veitumannvirki og gröft leiðarskurða með það að markmiði að koma í veg fyrir að innviðir í Svartsengi eyðileggist komi til þess að gos fari af stað. Þarna er um að ræða verulega hagsmuni fyrir samfélagið allt á Suðurnesjum því eins og margoft hefur komið fram í umræðunni þá eru Suðurnesin algerlega háð orkuverinu í Svartsengi með kyndingu húsa sinna. En það þarf fleira að koma til þar sem yfir okkur vofa atburðir sem við höfum ekki upplifað, a.m.k. ekki í hálfa öld. Fólkið í Grindavík hefur þurft að flýja heimili sín og það liggur nú fyrir að skemmdir eru orðnar töluverðar, götur farnar í sundur, hús hafa skemmst og lagnir hafa farið í sundur með tilheyrandi afleiðingum. Því miður er allt útlit fyrir að þetta sé aðeins byrjunin. Það getur enginn komið í veg fyrir eldgos en við ráðum viðbrögðum okkar við því. Þá skiptir svo sannarlega miklu máli að hafa til staðar sterka framvarðasveit sem við erum svo heppin að hafa.

Í mínum huga skiptir það máli hvað það er sem við skilgreinum sem almannavarnir. Verndun innviða og fasteigna fellur svo sannarlega undir almannavarnir en í mínum huga telst það ekki síður til almannavarna að hlúa að fólki, koma því í öryggi og aðstoða það við að koma sér í félagslega virkni á nýjan leik. Slíka vinnu er hægt að vinna nú þegar. Fólk þarf að hafa fullvissu um að framfærsla þess sé tryggð, að börnin komist í skóla við fyrsta tækifæri og að ungum sem öldnum verði boðin þátttaka í íþróttum og tómstundum. Þetta eru allt risavaxin verkefni sem verða að vinnast. Til þess að svo megi verða þarf samfélagið allt að leggjast á árarnar. Það er hins vegar ekki hægt annað en að dást að viðbrögðum fólksins sem býður fram aðstoð sína til að styðja við samfélagið í Grindavík og slík upplifun fyllir mann stolti yfir að vera hluti af þessu samfélagi.

Virðulegi forseti. Það var mikilfengleg sjón að sjá langa röð af vörubílum við Grindavíkurafleggjarann þegar ég keyrði til Reykjavíkur í morgun. Vinna við varnargarðanna er greinilega komin á fullt og það veitir ákveðna öryggiskennd að vita af því. Þessi staða sem við stöndum andspænis núna er flókin að því leytinu til að það þarf að takast á við margar sviðsmyndir og því miður virðast þær ekki góðar. Stóra verkefnið er því að teikna upp viðbragðsáætlanir við sem flestum sviðsmyndum. Það er risavaxið verkefni.

Virðulegur forseti. Þeir atburðir sem gætu verið fram undan eru af þeim toga að það er ekki á færi fárra aðila að takast á við þá. Samfélagið allt þarf að koma að. Sú samstaða sem þjóðin hefur sýnt undanfarna daga staðfestir svo sannarlega að það ætlar hún að gera. Hvað bíður okkar veit hins vegar enginn á þessum tímapunkti en þó er ljóst að verulegt tjón hefur nú þegar orðið í Grindavík. Þótt ekkert annað gerist þá liggur það fyrir að samfélagið í bænum þarf mikinn stuðning frá Alþingi, frá öðrum Suðurnesjamönnum og frá þjóðinni allri. Sú vinna sem er farin af stað til að verja orkuveituna er bara fyrsta skrefið í þeirri atburðarás sem virðist blasa við okkur. Komi til þess að gos fari að flæða inn til Grindavíkur þarf að reyna með öllum ráðum að verja bæinn. Það á að reyna að beina hraunflæði vestur fyrir bæinn, m.a. til þess að verja höfnina sem er og hefur verið lífæð samfélagsins. En hvernig sem allt fer, virðulegur forseti, skipta mestu máli þau viðbrögð almannavarnaaðila til bjargar fólkinu sjálfu, því að þegar upp er staðið er það fólkið sem skiptir mestu máli umfram allt annað.