154. löggjafarþing — 31. fundur,  14. nóv. 2023.

vaktstöð siglinga.

180. mál
[15:42]
Horfa

Frsm. meiri hluta um.- og samgn. (Halla Signý Kristjánsdóttir) (F):

Virðulegi forseti. Ég mæli fyrir hönd meiri hluta umhverfis- og samgöngunefndar fyrir nefndaráliti með breytingartillögu um frumvarp til laga um breytingu á lögum um vaktstöð siglinga. Með frumvarpinu eru lagðar til breytingar á lögum um vaktstöð siglinga sem lúta m.a. að því að veita Vegagerðinni heimild til að framselja ákveðin verkefni til Landhelgisgæslunnar. Þá er lagt til nýtt ákvæði um skyldur farþegaskipa, 300 brúttótonna eða stærri, til að tilkynna áætlaða leið að næstu höfn og tilkynna það ef þau hyggjast setja farþega í land utan hafna. Jafnframt er lögð til heimild fyrir ráðherra til að setja reglugerðir um tilkynningarskyldu og loks er lagt til að við lögin verði bætt heimild til álagningar stjórnvaldssekta.

Að mati meiri hlutans felur frumvarpið í sér mikilvæg skref í átt að auknu öryggi sjófarenda og telur meiri hlutinn mikilvægt að þær breytingar sem lagðar eru til nái fram að ganga. Þá voru umsagnaraðilar almennt jákvæðir í garð frumvarpsins og fagna breytingum sem séu til þess fallnar að stuðla að frekara öryggi á sjó.

Nefndin fjallaði um málið, fékk á sinn fund gesti og bárust umsagnir. Greint er frá því í nefndaráliti sem liggur fyrir. Í kjölfar umfjöllunar nefndarinnar um málið vill meiri hluti nefndarinnar árétta sérstaklega eftirfarandi: Nefndin fjallaði um framsal verkefna en í d-lið 1. gr. frumvarpsins er gert ráð fyrir því að Vegagerðin fái heimild til að fela Landhelgisgæslu Íslands að annast tiltekin verkefni vaktstöðvar siglinga. Þá verði Vegagerðinni jafnframt heimilt að gera þjónustusamning við aðra aðila um einstaka þætti reksturs vaktstöðvar siglinga.

Þáverandi Siglingastofnun gerði þjónustusamning við Neyðarlínuna árið 2010 um rekstur vaktstöðvarinnar sem enn er í gildi. Verkefni Siglingastofnunar samkvæmt lögum um vaktstöð siglinga voru síðar færð yfir til Vegagerðarinnar og Samgöngustofu með lögum nr. 59/2013. Þá gerði Neyðarlínan, sem sér í dag um rekstur þess vöktunar- og fjarskiptabúnaðar sem tilheyrir rekstri vaktstöðvarinnar samkvæmt þjónustusamningnum, samkomulag við Landhelgisgæsluna árið 2016 sem felur í sér að starfsmenn stjórnstöðvar Landhelgisgæslunnar fara með daglega stjórn allra verkefna vaktstöðvarinnar. Þannig deila Neyðarlínan og Landhelgisgæslan með sér verkefnum sem tilheyra rekstri hennar. Neyðarlínan ber jafnframt ábyrgð gagnvart Vegagerðinni á þeirri þjónustu sem skylt er að veita.

Í umfjöllun um málið var bent á að það fyrirkomulag sem hér var farið yfir hafi gefist vel, þ.e. að hafa einn þjónustusamning í gildi um verkefni og rekstur vaktstöðvarinnar sem einn aðili sé ábyrgur fyrir. Þannig hafi það samningsfyrirkomulag sem gilt hafi á milli Vegagerðarinnar og Neyðarlínunnar virkað vel þótt fjárveitingar hafi verið af skornum skammti undanfarin ár. Þá voru uppi sjónarmið um að hlutverk vaktstöðvar siglinga yrði fært til Landhelgisgæslunnar og henni þar með formlega falin ábyrgð á rekstri hennar beint og milliliðalaust.

Í minnisblaði sem barst frá ráðuneytinu við vinnslu málsins kom fram varðandi ákvæði frumvarpsins um framsal verkefna, að með því séu ekki lagðar til meiri háttar breytingar á fyrirkomulagi reksturs vaktstöðvar siglinga né að skipta henni í minni einingar. Áfram sé gert ráð fyrir að sömu aðilar komi að þessum verkefnum og sinni sama hlutverki. Á hinn bóginn sé lagt til að breyta stöðu Landhelgisgæslunnar þannig að í stað þess að hún annist verkefni samkvæmt samningi við Neyðarlínuna geri hún það á grundvelli valdaframsals frá Vegagerðinni.

Meiri hlutinn tekur undir þær ábendingar sem bárust nefndinni um að öryggi sjófarenda skuli ávallt haft í fyrirrúmi þegar ákvarðanir um rekstrarfyrirkomulag vaktstöðvar siglinga eru teknar. Á hinn bóginn telur meiri hlutinn ljóst að með þessari breytingu sé fyrst og fremst verið að greina betur á milli hlutverka aðila og verklags en gert er í gildandi lögum með því að koma á beinni heimild fyrir Vegagerðina til að fela Landhelgisgæslunni tiltekin verkefni á grundvelli laganna. Meiri hlutinn tekur enn fremur undir sjónarmið ráðuneytisins um að formlegur flutningur verkefna vaktstöðvar siglingar til Landhelgisgæslu Íslands krefjist meiri undirbúnings og víðtækari stefnumótunar á þessu sviði, auk frekara samráðs við hagsmunaaðila, líkt og rakið hefur verið. Endanlegur flutningur verkefna vaktstöðvar siglinga er því ótímabær að mati meiri hluta nefndarinnar eins og sakir standa.

Þá fjallaði nefndin um álagningu stjórnvaldssekta í 4. gr. frumvarpsins en þar er lagt til að nýrri grein verði bætt við lögin þar sem Vegagerðinni verði veitt heimild til að leggja á stjórnvaldssektir vegna brota á tilteknum ákvæðum laganna og reglum sem settar eru samkvæmt þeim.

Í 3. mgr. 4. gr. frumvarpsins er mælt fyrir um fjárhæð stjórnvaldssekta og er einnig í ákvæði 4. mgr. mælt fyrir um sérstaka heimild fyrir Vegagerðina, og eftir atvikum Landhelgisgæslu Íslands, til að ákveða hærri sektir hafi aðili hagnast á broti. Í þeim tilvikum skuli upphæð stjórnvaldssektar ákveðin sem allt að tvöfalt margfeldi af þeim hagnaði sem aðili hefur aflað sér með broti gegn lögunum. Á ábyrgð viðkomandi yfirvalda, þ.e. Vegagerðarinnar og Landhelgisgæslunnar, er að áætla og reikna út þann hagnað sem runnið hefur til aðila vegna brota á ákvæðum laganna.

Í umfjöllun nefndarinnar um þetta atriði kom fram að óskýrt væri hvernig hagnaður sem aðili hefði aflað sér með broti gegn lögunum væri reiknaður og þar af leiðandi hvort hann kynni að fara fram úr þeim hámarksfjárhæðum sem mælt er fyrir um í frumvarpinu. Meiri hlutinn bendir á að sambærileg sektarákvæði er víða að finna í lögum, svo sem í 3. mgr. 45. gr. skipalaga og 4. mgr. 32. gr. laga um áhafnir skipa. Telur meiri hlutinn ekki nægjanleg rök standa til þess að gera breytingar á ákvæðinu.

Bent var á við umfjöllun um málið að það kynni að vera óheppilegt að Vegagerðinni sé falin heimild til að innheimta stjórnvaldssektir og að Landhelgisgæslunni sé gert að sækja stoð fyrir töku íþyngjandi stjórnvaldsákvarðana. Væri slík framkvæmd til þess fallin að skapa réttaróvissu. Í minnisblaði sem aflað var frá ráðuneytinu er bent á að með frumvarpinu er lagt til að Landhelgisgæslunni verði veitt heimild til að leggja á stjórnvaldssektir þegar henni eru falin verkefni tiltekin í samræmi við 3. mgr. 2. gr. laganna. Ákvarðanir Landhelgisgæslunnar um að leggja á stjórnvaldssektir verði því ekki byggðar á þjónustusamningi.

Að mati meiri hlutans fela ákvæði frumvarpsins í sér skýra lagaheimild fyrir Landhelgisgæsluna til að leggja á stjórnvaldssektir, hafi ytra valdframsal átt sér stað frá Vegagerðinni til Landhelgisgæslunnar. Þar með fái Landhelgisgæslan beina heimild til að leggja á slíka sekt án þess að þurfa að senda Vegagerðinni erindi til að láta þá stofnun leggja á sekt, líkt og rakið er í greinargerð með frumvarpinu. Meiri hlutinn telur þannig ekki þörf á því að breyta ákvæðinu að þessu leyti, enda mikilvægt að bæði Vegagerðin, sem fer með framkvæmd laganna ásamt Samgöngustofu, og Landhelgisgæslan hafi heimild til álagningar stjórnvaldssekta vegna brota á tilteknum ákvæðum laganna. Það er sem sagt aðeins verið að einfalda kerfið.

Nefndin fjallaði að auki um hvort þörf sé á að kveða á um það með skýrari hætti að ráðherra hafi heimild til að skilgreina með reglugerð sérstök svæði sem frátekin eru fyrir siglingar, eða tilgreina hvaða leiðir eru fráteknar fyrir siglingar vegna náttúrulegra aðstæðna eða annarra þátta.

Í minnisblaði innviðaráðuneytis kemur fram að mat ráðuneytisins sé að ákvæði af þessu tagi þarfnist frekari undirbúnings. Jafnframt kemur fram í minnisblaðinu að það kunni að vera rétt að setja ákvæði af því tagi sem Samgöngustofa leggur til en æskilegt sé að fram færi samráð við hagsmunaaðila áður en slíkt ákvæði yrði lögfest.

Meiri hlutinn tekur undir þau sjónarmið sem fram koma í minnisblaðinu en þykir rétt að beina því til ráðuneytisins að kanna möguleika þess að fella inn í lögin ákvæði af þessu tagi.

Hvað varðar breytingar þá leggur meiri hlutinn til eina tæknilega breytingu á 2. gr. frumvarpsins þess efnis að í stað orðsins „eða“ komi: og. Í ákvæði 7. gr. laga um vaktstöð siglinga er nú þegar vísað til skipa, 300 brúttótonna að stærð og stærri, og er því sú breyting sem til er lögð til þess fallin að tryggja samræmda orðanotkun í þessari grein laganna. Og og eða skipta máli, hvar þau eru sett inn í lagatexta.

Að framansögðu virtu leggur meiri hluti umhverfis- og samgöngunefndar til að frumvarpið verði samþykkt með þeim breytingum sem gerð hefur verið grein fyrir.

Undir álit meiri hluta nefndarinnar rita, auk þeirrar sem hér stendur, hv. þingmenn Bjarni Jónsson, Björgvin Jóhannesson, Ingibjörg Isaksen, Njáll Trausti Friðbertsson, Orri Páll Jóhannsson, Þórunn Sveinbjarnardóttir og Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir. Að svo sögðu legg ég til að málið verði samþykkt, enda er ágætlega um það búið.