Jöfnunarsjóður sveitarfélaga.
Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir hans framsögu. Jöfnunarsjóður sveitarfélaga er í mínum huga mjög áhugavert fyrirbæri og hafandi verið starfandi á sveitarstjórnarstigi í allmörg ár geri ég mér ágætlega grein fyrir því hversu mikla þýðingu slíkur sjóður hefur haft fyrir mörg sveitarfélög. En ég hef líka á köflum verið undrandi á því með hvaða hætti framlög úr sjóðnum hafa verið og það hefur m.a. vakið athygli mína í gegnum tíðina að sveitarfélög sem ekki nýta sér tekjustofna og bjóða íbúum upp á lægra útsvar en önnur sveitarfélög hafi fengið úr jöfnunarsjóði. En þarna er verið að leiðrétta slíkt sem er í mínum huga ánægjulegt. Mig langar aðeins að fara yfir það að hér er verið að tala um að í regluverki sjóðsins séu innbyggðir hvatar til sameiningar sveitarfélaga en á sama tíma er verið að ræða um sjálfbærni sveitarfélaga, styrkja þau, styrkja veikari byggðir. Maður veltir fyrir sér hvort þetta geti unnið hvert gegn öðru. Veikar byggðir eru kannski veikar vegna þess að þær hafa ekki nægilegar tekjur og væru betur komnar ef þær myndu sameinast. Erum við ekki svolítið alltaf að segja: Já, við ætlum að styrkja okkur en við viljum líka að þið sameinist. Mér finnst ég sjá einhverja þversögn í þessu, að við séum ekki að ganga alla leið í þessu heldur að viðhalda veikari byggðum í stað þess að reyna að fá sveitarfélög til að sameinast.