Jöfnunarsjóður sveitarfélaga.
Virðulegur forseti. Já, hér er tvennt nefnt sem er áhugavert að koma inn á. Annars vegar var það þannig að þegar yfirfærslan varð 1996 var Reykjavíkurborg eins og hún er í dag langstærsta sveitarfélagið. Þá var bara sagt: Nú ætlum við að skipta kökunni öðruvísi, þið eruð með svo stóran hlut og fáið svo stóran hluta af þeim gjöldum eða tekjum sem fylgja að það er bara alveg eins og ríkið sé að þessu. Síðan hefur orðið umtalsverð breyting eins og hv. þingmaður nefndi og ég fór hérna yfir í ræðu minni, við erum komin með allt annað samfélag og ég held að þetta sé atriði sem meira og minna allir eru sammála um, þarna er eitt af stærstu verkefnum okkar framtíðar, þ.e. íslenskukennslu fyrir okkar nýja fólk sem er að flytja hingað með íslensku sem annað tungumál, ekki móðurmál, og við eigum að leggja áherslu á það. Það er eðlilegt að þau börn sem alast upp í Reykjavík fái þennan sama stuðning. Ég held að um þetta sé ekkert mikið deilt.
Varðandi síðan höfuðstaðarálagið þá hefur það alveg verið skoðað og gerðar greiningar. Hv. þingmaður nefnir hér tvo staði í Suðurkjördæmi, Árborgarsvæðið og Reykjanesbæ. Auðvitað væri hægt að nefna Múlaþing og það væri hægt að nefna Sauðárkrók og Ísafjörð, jafnvel Borgarnes, Akranes. Í ljós kemur að enginn af þessum stöðum er að taka á sig nákvæmlega það sama hvað varðar félagsþjónustuþáttinn eða menningarþáttinn. Ef við tökum bara Akureyrarbæ er hann sennilega að greiða um 500 milljónir árlega með Hofi, sem ekkert annað sveitarfélag er að gera með sinni menningarstofnun, fyrir utan þessa flóknari, félagslegu þjónustu. Það eru líka að koma inn á mörg af hinum svæðunum tekjur vegna annarra þátta (Forseti hringir.) sem gera það að verkum að þessi þörf var ekki talin nauðsynleg. En síðan getur það gerst auðvitað á næstu fáum árum að þessi byggðarlög, (Forseti hringir.) sérstaklega þessi tvö sem hv. þingmaður nefndi, fari að þróast í áttina að verða kannski jafnvel stærri en Akureyrarsvæðið og taka þannig þungann á sig.
(Forseti (ÁsF): Forseti minnir hæstv. ráðherra á ræðutímann.)