dýrasjúkdómar o.fl.
Virðulegi forseti. Ég mæli hér fyrir frumvarpi á þskj. 531, 483. mál, um breytingu á lögum um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim, lögum um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru og lögum um dýralækna og heilbrigðisþjónustu við dýr. Frumvarpið er nokkuð samsett og er samið í matvælaráðuneytinu.
Markmiðið er þríþætt. Í fyrsta lagi að tryggja Matvælastofnun nauðsynlegar valdheimildir vegna opinbers eftirlits með aukaafurðum dýra sem ekki eru ætlaðar til manneldis. Í öðru lagi að breyta lagastoð fyrir innleiðingu á reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins 2019/4 um lyfjablandað fóður, en efnisákvæði um lyfjablandað fóður er nú að finna í lyfjalögum og með þessu frumvarpi er lagt til að þau ákvæði verði felld úr lyfjalögum og sett í lög um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru.
Jafnframt er markmið frumvarpsins að gera breytingar á síðastnefndum lögum til að samræma íslensk lög við reglugerð framkvæmdastjórnar ESB og rýmka reglur um notkun dýrapróteina í fóður.
Í þriðja og síðasta lagi er lagt til í frumvarpinu að setja gjaldtökuheimild í lög um dýralækna og heilbrigðisþjónustu við dýr svo Matvælastofnun geti innheimt gjald vegna þeirrar vinnu sem hlýst af veitingu starfsleyfa á sviði dýralækninga.
Reglur um aukaafurðir dýra sem ekki eru ætlaðar til manneldis hafa verið í gildi á Íslandi um árabil en illa hefur gengið að koma málaflokknum í viðunandi farveg, bæði hvað varðar uppbyggingu innviða en einnig hvað varðar eftirlit með málaflokknum. Opinbert eftirlit með þessum afurðum skiptist áður á hendur þriggja eftirlitsaðila, þ.e. Matvælastofnunar, Umhverfisstofnunar og Heilbrigðiseftirlits sveitarfélaga.
Á síðasta ári var Ísland dæmt brotlegt fyrir EFTA-dómstólnum og í úrskurðinum kemur fram að Ísland hafi ekki staðið við skuldbindingar sínar hvað varðar meðferð dýraleyfa, m.a. með því að hafa hvorki komið á viðeigandi kerfi til að meðhöndla dýraleyfi með þeim hætti sem löggjafinn mælir fyrir um né eftirlitskerfi til að tryggja að þeim skilyrðum sem reglurnar kveða á um sé framfylgt.
Einn liður í umbótum Íslands í málaflokknum var að færa allt eftirlit með aukaafurðum dýra á hendur eins eftirlitsaðila, þ.e. Matvælastofnunar, og var það gert með reglugerðarbreytingu í maí á þessu ári.
Stofnunin hefur valdheimildir til að knýja fram úrbætur og beita viðurlögum samkvæmt lögum um matvæli og fóðurlögum en hún hefur engar slíkar heimildir gagnvart rekstraraðilum og/eða einstaklingum sem meðhöndla aukaafurðir dýra en eru hvorki matvæla- eða fóðurframleiðendur, t.d. urðunarstaðir og brennslur. Því er nauðsynlegt að tryggja Matvælastofnun slíkar heimildir í lögum um dýrasjúkdóma, enda er megintilgangur bæði þeirra laga og EES-reglna um aukaafurðir dýra sem ekki eru ætlaðar til manneldis að sporna gegn útbreiðslu dýrasjúkdóma.
Þá eru í frumvarpi þessu lagðar til breytingar á lögum um eftirlit með fóðri, áburði og sáðvöru vegna innleiðingar á EES-reglum, annars vegar reglugerð ESB um lyfjablandað fóður en í því sambandi eru felld brott efnisákvæði er varða lyfjablandað fóður úr lyfjalögum og nauðsynleg ákvæði sett inn í fóðurlög. Hins vegar er reglugerð um breytingar á reglum um nýtingu dýrapróteins í fóður.
Að lokum er í frumvarpinu lagt til að sett verði gjaldtökuheimild í lög um dýralækna og heilbrigðisþjónustu við dýr svo að Matvælastofnun geti innheimt raunkostnað fyrir þá vinnu sem hlýst af mati á umsóknum um útgáfu starfsleyfa til þeirra sem um þau sækja.
Virðulegi forseti. Ég hef nú rakið meginefni þess frumvarps sem hér er til umræðu og vil að öðru leyti vísa til greinargerðarinnar sem fylgir frumvarpinu þar sem ítarlega er fjallað um efni þess.
Að lokinni 1. umræðu legg ég til að frumvarpinu verði vísað til hv. atvinnuveganefndar til umfjöllunar.