alþjóðleg þróunarsamvinna Íslands fyrir árin 2024--2028.
Virðulegi forseti. Ég byrja bara á því að spyrja hvort hv. þingmaður sé virkilega að halda því fram að íslensk stjórnvöld hafi verið að ýta undir átök. Það er auðvitað með mestu ólíkindum ef það er útgangspunktur hv. þingmanns að eitthvað í framgöngu íslenskra stjórnvalda á alþjóðavettvangi hafi verið til þess fallið að ýta undir átök. Ég sé að hv. þingmaður jánkar þessu og þá get ég í sjálfu sér ekkert annað gert en að hvetja þingmanninn einfaldlega til að lesa þær ræður sem hafa verið skrifaðar og fluttar og eru birtar, m.a. þær ræður sem hafa verið fluttar í allsherjarþinginu og skoða þann málstað sem við höfum þar varið og haldið uppi, sem byggir á því að alþjóðalög ber að virða, að við höfum stóraukið framlög okkar til mannúðarmála. Við höfum hvatt til þess að það sé dregið úr spennu. Við höfum hvatt til þess að það sé unnið til lengri tíma að friðsamlegri lausn þar sem tvö ríki geta búið í nágrenni við hvort annað í friði. Ég hafna því algerlega og kategórískt að við höfum með okkar framgöngu eða málflutningi verið að ýta undir átök. Ég hafna því algerlega. Þess vegna er í sjálfu sér erfitt að bregðast við spurningunni með öðrum hætti en þessum, ég vísa hv. þingmanninum bara á að kynna sér þær áherslur sem eru opinberar.
Varðandi áherslu á lífskjör fólks á flótta þá erum við hér að tala um alþjóðlega þróunarsamvinnu. Við erum að tala um það sem við getum gert í alþjóðasamstarfinu til þess að styðja við stofnanir sem hafa þetta sérstaka markmið. Við höfum t.d. verið að stórauka framlög okkar til UNRWA, sem er með þetta hlutverk t.d. á þessu tiltekna átakasvæði. (Forseti hringir.) Og já, ég held að við getum verið stolt af útlendingalöggjöfinni okkar á Íslandi, (Forseti hringir.) bara verulega stolt, og við erum að gera vel á því málasviði.