154. löggjafarþing — 31. fundur,  14. nóv. 2023.

alþjóðleg þróunarsamvinna Íslands fyrir árin 2024--2028.

484. mál
[18:31]
Horfa

Logi Einarsson (Sf):

Frú forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir framsöguna. Mér finnst mjög margt gott í þessari þingsályktunartillögu. Hún er vel upp sett og skýr og þar eru jákvæð skilaboð á margan hátt þótt það sé hægt endalaust deila um hraða framgangs mála og annað af því tagi. Þingsályktunartillagan fer í upphafi ágætlega yfir þær áskoranir sem heimsbyggðin stendur sannarlega frammi fyrir; vaxandi fátækt og ójöfnuð og aukinn fjölda fólks á flótta vegna ýmissa ytri aðstæðna og auðvitað aðstæðna í ýmsum ríkjum. Það er auðvitað alveg rétt sem kemur fram líka að þessar og vissulega fleiri áskoranir ógna helst framgangi heimsmarkmiða Sameinuðu þjóðanna sem við styðjum og sem eru til grundvallar þróunarsamvinnu Íslands.

Mér finnst ánægjulegt að það skuli svona afdráttarlaust hafa verið lýst yfir stuðningi við markmið Sameinuðu þjóðanna um þróunarsamvinnu sem gerir ráð fyrir 0,7% af vergum þjóðartekjum. Við eigum vissulega langt í land, eins og hér hefur komið fram, og erum umtalsverðir eftirbátar nágrannaþjóða okkar. En það má þó í þessari útgáfu, þessari þingsályktunartillögu, sjá tölusett markmið sem stefna upp á við. Það er í rauninni nýlunda frá því hvernig þetta hefur verið síðustu nokkur árin þar sem þetta hefur staðið meira og minna í stað. Ég verð auðvitað að fagna því. Og eins og ég sagði áðan getum við endalaust deilt um það hversu hratt á að stefna að þessu. En það er þó gleðilegt að sjá að núna sjáum við skref upp á við næstu árin. Okkar hlutverk hérna í þinginu er þá bara standa á bak við þau áform og tryggja að svo verði.

Ég ætla ekki að tíunda þá mismunandi samvinnu sem við eigum í. Allt er þetta ágætt. En mig langar þó að hrósa Íslandi fyrir þessa tvíhliða þróunarsamvinnu sem stjórnvöld hafa staðið fyrir í Malaví, Úganda og nú í Síerra Leóne. Ég var nú svo heppinn sjálfur að fara árið 2018 ásamt þáverandi formanni utanríkismálanefndar, Áslaugu Örnu Sigurbjörnsdóttur, til Malaví og kynna mér starfið þar. Það var hreint ótrúlegt að sjá hversu gifturíkt það er að vinna með svona milliliðalausum hætti með héraðsstjórnum þar og ná þá í fyrsta lagi að nýta fjármunina mun betur en gæti gerst ef þetta færi í gegnum einhverja milliliði, auk þess sem þetta var heilmikill stuðningur við kerfið þar og ákvarðanatöku og markmiðssetningu stjórnvalda í þessum héruðum þar sem þau lærðu í rauninni áætlanagerð og að hrinda hugmyndum í framkvæmd með stuðningi frá Íslandi. Það var mjög gleðilegt og ég hvet Ísland áfram til þess að gera það. Við höfum valið þarna þrjú af allra fátækustu ríkjum heims og það er auðvitað mjög skynsamlegt og mikilvægt að gera það af því að hreint vatn, skólar og aðgangur að sjúkrahúsi er svo sannarlega forsenda þess að þessi lönd geti vaxið upp úr hryllilegri fátækt ásamt því að við beitum okkur fyrir því að þau taki betri stefnu gagnvart mannréttindum, af því að víðast hvar eru þau á þessum stöðum ekki í mjög góðum málum.

Frú forseti. Framlag okkar til þessarar þróunarsamvinnu skiptir svo sannarlega miklu máli en í fullri hreinskilni þá munu fjármunir frá fámennu landi eins og Íslandi auðvitað ekki ríða baggamuninn þegar kemur að því að uppræta örbirgð í heiminum. En þá er rétt að nefna líka svona rétt í lokin að við Íslendingar eigum annað mjög öflugt tæki sem við eigum að nota og sem við höfum auðvitað nýtt; það eru áhrif í alþjóðasamstarfi og það er röddin okkar. Hvort tveggja eigum við að nota til góðs, hluti eins og frelsi, lýðræði, mannréttindi og jafnrétti. Þetta eru allt gildi sem við höfum talað fyrir og eigum að tala fyrir og það er auðvitað mjög ánægjulegt að það komi skýrt fram í þessari þingsályktunartillögu að það ætlum við svo sannarlega að gera áfram, því að á endanum er það nú sennilega allra líklegasta leiðin til að ríki nái að lyfta sér upp úr fátækt og ömurð og til meiri velsældar og mannréttinda.