154. löggjafarþing — 32. fundur, 15. nóv. 2023.
Frestun á skriflegum svörum.
Borist hefur bréf frá menningar- og viðskiptaráðherra þar sem óskað er eftir fresti til þess að veita skriflegt svar við fyrirspurn á þskj. 450, um fjölda starfsmanna, stöðugilda og einstaklinga í verktöku hjá Ríkisútvarpinu ohf. og RÚV sölu ehf., frá Friðjóni R. Friðjónssyni. Einnig hefur borist bréf frá forsætisráðherra þar sem óskað er eftir fresti til þess að veita skriflegt svar við fyrirspurn á þskj. 426, um virði kvennastarfa, frá Dagbjörtu Hákonardóttur.