Störf þingsins.
Virðulegi forseti. Þeirri spurningu hefur verið velt upp að undanförnu hvort einkafyrirtæki eigi að greiða fyrir varnargarða vegna mögulegrar náttúruvár að hluta eða öllu leyti. Því miður hefur í gegnum tíðina heyrst svipuð umræða varðandi uppbyggingu snjóflóðavarnargarða og því vert að minnast á að ríkisstjórnin samþykkti í ágúst að vinna frumvarp og útvíkka hlutverk ofanflóðasjóðs þannig að hann tæki einnig til varna gegn ofanflóðum á atvinnusvæðum. Aldrei hef ég heyrt neinar mótbárur gegn þeim hugmyndum enda grundvallast þær á ákveðnu prinsippi. Við hljótum öll að vera sammála um að það er gríðarlega mikilvægt fyrir samfélagið að ganga í slíkar varnir.
Varnargarðar á Reykjanesi eru hugsaðir til að varna mikilvægum innviðum og almannahagsmunum. Leiðigarður fyrir orkuverið í Svartsengi er hannaður af góðri ástæðu á hæstu punktum í landslagi. Það er því tilviljun að Bláa lónið fellur þar inn í. Önnur fyrirtæki sem hafa starfsemi í orkugeiranum eru t.d. ekki innan varnargarðs og gerð varnargarða kemur til eftir mat almannavarna á gagnsemi þeirra á hverjum tíma. Ef starfsemi í orkuverinu í Svartsengi lamast skapast mjög alvarlegt almannavarnaástand ofan á það alvarlega ástand sem nú er komið upp í Grindavík og blasir við íbúum Grindavíkur. Þar þurfum við að leggja allt okkar í sölurnar.
Virðulegi forseti. Ég tel nauðsynlegt að hér sé stofnaður náttúruvársjóður sem sameinar hlutverk ofanflóðasjóðs og Náttúruhamfaratrygginga og tæki til varna gegn allri náttúruvá. Í mínum huga á hið opinbera ríki og eftir atvikum sveitarfélög að bera kostnað af almannavörnum hér á landi, enda væri annað fjarstæðukennt. Saman verðum við að axla ábyrgð og reyna eftir fremsta megni að lágmarka tjón af náttúruhamförum sé þess einhver kostur.