154. löggjafarþing — 32. fundur,  15. nóv. 2023.

Störf þingsins.

[15:06]
Horfa

Sigmar Guðmundsson (V):

Herra forseti. Það er erfitt fyrir okkur að setja okkur til fulls í spor Grindvíkinga. Það er erfitt að horfa á að fjölskyldur þurfi að yfirgefa heimili sitt og byggðarlag með sáralítið nema brýnustu nauðsynjar. Þetta er ótrúlega sár lífsreynsla fyrir fólk. Við það bætist svo óvissa um framtíðina, eigur, húsnæði, fjármál, atvinnu og jafnvel skólagöngu barnanna. Það er alveg morgunljóst að hugur okkar er hjá Grindvíkingum og við vonum auðvitað að allt fari betur en verstu sviðsmyndir gera ráð fyrir.

Við Íslendingar kunnum að bregðast skjótt við og koma fólki í skjól undan ógn, enda búum við í landi þar sem ofanflóð og náttúruvár vofa yfir okkur. Þetta gerist af og til á Íslandi. Það hefur áður þurfti að rýma byggðarlög vegna yfirvofandi hættu, ýmist að öllu leyti eða hluta. Og núna sjáum við á samfélagsmiðlum að Grindvíkingar velta því fyrir sér hvort þeir muni geta greitt af lánum sínum og öðrum fjárhagsskuldbindingum í nánustu framtíð. Það er til að mynda verið að gagnrýna það að fjármálastofnanir hyggist innheimta vexti af lánum sem ekki verður hægt að greiða af að óbreyttu ef fram heldur sem horfir og ofan á það er fólk í fullkominni óvissu um framtíðarbúsetu.

Ég velti því fyrir mér: Er til of mikils mælst að stjórnvöld geti eytt óvissu fólks á Íslandi hratt, vel og örugglega í svona náttúruhamförum þegar fjárhagurinn er annars vegar? Ég held að svarið við því sé já. Ég hefði haldið að íbúar byggða sem er á slíkum hættusvæðum ættu samstundis að geta fengið svör frá ríkisvaldinu um að þegar fólk getur ekki lengur unnið, hvað þá búið í sveitarfélaginu sínu vegna almannavarnaástands, þá eigi að vera hægt að gefa þau loforð að fjárhagslegt öryggi þess þurfi ekki að vera í uppnámi. Mér finnst skorta á það í dag og af því að við viljum öll standa með Grindvíkingum þá verðum við að geta svarað þessari spurningu jafn vel, jafn hratt og örugglega og við göngum í verkin þegar við erum að rýma hús.