Störf þingsins.
Virðulegur forseti. Jarðhræringarnar í Grindavík halda áfram og hættan á eldgosi er enn til staðar. Þetta ástand hlýtur að reyna mikið á fólkið sem þurft hefur að yfirgefa heimili sín með það í huga að hugsanlegt sé að heimili þess geti horfið og ekki verði aftur snúið. Við sem stöndum á hliðarlínunni getum ekki sett okkur í þessi spor en það er þá okkar að styðja við þá sem eru í slíkum aðstæðum. Þetta er nú þegar orðið risavaxið verkefni sem vinnst ekki í neinni skyndingu. Það sem skiptir mestu máli er að koma fólki í öruggt skjól og hjálpa til við að tryggja einhvern stöðugleika, alla vega næstu mánuði og misseri en mögulega lengur. Miðað við þá stöðu sem uppi er liggur það fyrir að þetta ástand er ekkert að fara frá okkur. Það er gleðiefni að Reykjavíkurborg skuli hafa boðið fram aðstöðu fyrir bæjarstjórn og bæjarráð Grindavíkur til að halda stjórnsýslunni gangandi. Sömuleiðis að það sé verið að opna þjónustumiðstöð hér í Reykjavík í dag. Það er algjörlega nauðsynlegt fyrir íbúa Grindavíkur að hafa möguleika til að hittast og til þess að fá upplýsingar frá fyrstu hendi. Íbúar Grindavíkur eru nú þegar dreifðir um allt land og rétt að íhuga hvort það sé ekki rétt að slík þjónustumiðstöð verði sett á fót í fleiri byggðarlögum. Mér skilst að u.þ.b. 400 Grindvíkingar séu nú þegar komnir til Reykjanesbæjar. Þessir einstaklingar þurfa að sjálfsögðu á þjónustu að halda án þess að þurfa að þeysast á milli bæja.
Virðulegur forseti. Það er í öllu falli ljóst að samfélagið í heild þarf að bregðast við og þar þarf ríkisstjórnin að sýna frumkvæði.