154. löggjafarþing — 32. fundur,  15. nóv. 2023.

Störf þingsins.

[15:20]
Horfa

Diljá Mist Einarsdóttir (S):

Virðulegi forseti. Ég hef gjarnan tekið upp málefni sjúklinga með endómetríósu hér í þinginu, m.a. með fyrirspurnum til hæstv. heilbrigðisráðherra. Á dögunum fékk ég svar við einni slíkri varðandi það hvernig hefði tekist til við samninga við Klíníkina um endómetríósuaðgerðir. Svarið er vægast sagt áhugavert en kom mér kannski minna á óvart en öðrum. Á þessu eina ári frá því að hæstv. heilbrigðisráðherra samdi við einkaaðila hafði Landspítalinn framkvæmt 123 aðgerðir en Klíníkin 160 aðgerðir. Það munar nú um minna fyrir konur sem þjást af gríðarlega sársaukafullum sjúkdómi, sjúkdómi sem veldur þannig viðvarandi verkjum að sjúklingarnir eru jafnvel óvinnufærir til lengri tíma. Þar sem vekur síðan sérstaka athygli er samanburður á kostnaði aðgerðanna annars vegar hjá Landspítala og hins vegar hjá Klíníkinni. Þannig kostuðu aðgerðirnar að meðaltali um 1,5 millj. kr. á Landspítala en meðaltal dýrari aðgerða var rúmlega 1,7 millj. kr. Aðgerðakostnaður hjá Klíníkinni var hins vegar um 890.000 kr. að meðaltali og eru dýrari aðgerðir þar inni. Sem sagt: Þessar aðgerðir eru að meðaltali á bilinu 600–800 þús. kr. dýrari hjá Landspítalanum en hjá Klíníkinni. Hver einasta aðgerð. Ég segi aftur: Það munar um minna. Við þekkjum þessi áhrif mjög vel í mínum flokki. Þegar við stýrðum síðasta heilbrigðisráðuneytinu voru augnsteinaaðgerðir til að mynda boðnar út. Þannig fékkst margfalt hagkvæmara varð á aðgerðunum og langir biðlistar hurfu á skömmum tíma.

Virðulegi forseti. Ég hvet hæstv. heilbrigðisráðherra því til dáða í þessum efnum til að efla fjölbreyttara rekstrarform í heilbrigðisþjónustu. Þannig má búast við stóraukinni hagkvæmni og skilvirkni eins og dæmin sýna. Það er ekkert sem stendur í vegi fyrir þessu nema gamaldags hugsun og fordómar.