154. löggjafarþing — 32. fundur,  15. nóv. 2023.

Störf þingsins.

[15:27]
Horfa

Þórunn Sveinbjarnardóttir (Sf):

Hæstv. forseti. Í morgun rann upp fertugasti dagur stríðsins á Gaza, stríðsins sem Hamas-hryðjuverkamenn hrundu af stað 7. október síðastliðinn. Mér skilst að nú séu tæplega 12.000 Palestínumenn fallnir. Meiri hluti þeirra eru konur og börn, tæplega 5.000 börn og rúmlega 3.000 konur. Ég las einhvers staðar í morgun að einn af hverjum 200 íbúum Gaza væri fallinn. Það þýðir að á Íslandi væru 1.960 manns fallnir í átökum á fimm vikum. Við sjáum engin merki þess að Ísraelsher ætli að draga úr loftárásum sínum og stríðsglæpum og fjöldamorði á almennum borgurum. Síðustu fréttir herma að þeir séu komnir inn í stærsta spítalann í Gaza-borg. Olían er búin. Vatnið er búið. Maturinn er að sjálfsögðu búinn. Fólkið sem flúði frá norðri til suðurs er líka sprengt upp. Fólkið sem varð eftir er sprengt upp. Næstum því helmingur bygginga á Gaza er rústir einar. Ég held að það sé orðið tímabært að ríkisstjórn Íslands beiti sér af alvöru fyrir friði á þessu svæði og ég held að við ættum líka að íhuga hvort fjöldamorð almennra borgara muni í raun og sann stuðla að friði og friðsælli framtíð fyrir botni Miðjarðarhafs.