Störf þingsins.
Virðulegi forseti. Við horfum gjarnan til Vestmannaeyjagossins þessa dagana þegar við erum að hugsa um þá ótrúlegu og skelfilegu atburði sem nú standa yfir á Reykjanesi. En við horfum líka kannski dálítið til Vestmannaeyja í einhvers konar rósrauðum ljóma og ég held að það sé ábyrgt og rétt að nefna það hér að eins og vel gekk þar að mörgu leyti þá voru margir hnökrar. Fólk vaknaði upp um miðja nótt, það þurfti að rýma Vestmannaeyjar, það þurfti að finna húsnæði, það þurfti að gera svo ótal margt fyrir fólkið og í sömu stöðu stöndum við í dag. Þetta var flókið verkefni þá og það er flókið í dag. Ýmislegt hefur verið gert nú þegar. Rýming íbúa í Grindavík gekk algerlega vonum framar.
Mig langar að segja við Grindvíkinga: Við erum að hlusta, við erum að vinna hratt og örugglega. Þegar áföllin dynja á erum við öll saman í liði. Við erum öll á sömu skútunni í ólgusjónum, en þegar líður á atburðinn og dagarnir líða þá minnkar eðlilega þol okkar gagnvart ástandinu. En það breytir því ekki að það er verið að vinna eins hratt og örugglega og hægt er.
Mig langar að minna á þjónustumiðstöðina sem opnar í dag sem er gríðarlega mikilvæg og mikilvægt að jafnvel verði fleiri opnaðar annars staðar í kjölfarið.
Mig langar að tala um innviðina. Það er ekki verið að verja einkafyrirtæki með álögum á einstaklinga. Þetta er hóflegur skattur á bæði einstaklinga og fyrirtæki sem eru fasteignaeigendur. Ég held við séum öll tilbúin til að gera það. (Forseti hringir.) Ég vil sjá bankana og jafnvel tryggingafélögin stíga fram af rausnarskap og mæta þeim áskorunum sem ekki bara Grindvíkingar heldur þjóðin stendur frammi fyrir (Forseti hringir.) og það þarf að gerast af festu. Svo vara ég við popúlískri umræðu og þá sérstaklega hér á þingi. (Forseti hringir.) Okkur verður ekkert meira ágengt með því að tala hér gegn hvert öðru. Stöndum saman.
(Forseti (BÁ): Forseti minnir á að ræðutími í störfum þingsins er tvær mínútur.)