154. löggjafarþing — 32. fundur,  15. nóv. 2023.

Málefni fatlaðs fólks.

[15:53]
Horfa

Berglind Harpa Svavarsdóttir (S):

Virðulegi forseti. Málefni fatlaðs fólks er mikilvæg umræða sem fer hér fram í dag til að ræða hin ýmsu málefni sem snerta fatlað fólk með það að markmiði að standa ávallt vörð um þann hóp og tryggja honum þau lífsgæði sem við öll viljum hafa í okkar lífi. Víðtækur alhliða stuðningur til fatlaðs fólks er mikilvægur og endurspeglast í lögum og reglum hér á landi. Þau lög eiga að tryggja stuðning til fatlaðs fólks þannig að þau geti lifað góðu lífi í viðeigandi húsnæði, tryggja framfærslu og atvinnu við hæfi, aðgang að námi ásamt öðrum mikilvægum stuðningi sem þau þurfa inn í sitt líf. Þetta eru gríðarlega mikilvæg markmið sem við verðum ávallt að hafa að leiðarljósi.

Atvinna og virkni er gríðarlega mikilvæg fyrir okkur öll og ekki síður fatlað fólk. Við þurfum öll að hafa ákveðna rútínu í gegnum daginn, finna tilgang hjá okkur með ákveðnu starfi sem hæfir okkur hverju sinni, fá einnig tækifæri til að stunda nám við hæfi og hafa frelsi til að gera það sem gefur okkur lífsfyllingu og tilgang. Fatlað fólk þarf mismunandi mikinn stuðning til þess og mikilvægt er að tryggja hann þegar hans er þörf.

Lagasetning til að standa vörð um réttindi fatlaðs fólks hefur verið stórlega efld í gegnum árin, sem ber að fagna. Nærsamfélögin, sveitarfélögin eru sá aðili sem framfylgir þeim lögum enda eru þau í mestri nánd við þá íbúa og finna vel hvar stuðningur þarf að koma inn í hverju tilfelli fyrir sig. Sveitarstjórnarfulltrúar hafa ítrekað bent á mikilvægi þess að Alþingi tryggi fjármagn sem fylgi til sveitarfélaganna til að þau geti ávallt staðið fjárhagslega undir þeirri þjónustu sem lögin segja til um að þau eigi að veita hverju sinni. En það er mikilvægt að við á Alþingi sinnum því hlutverki (Forseti hringir.) svo sveitarfélögin geti og muni ávallt standa vel að því að uppfylla alla þá lögbundnu skyldu sína um þjónustu (Forseti hringir.) sem þeim ber að veita til allra íbúa sinna, sem er mikilvægur grunnur að því samfélagi sem við viljum búa í hér á landi.