Málefni fatlaðs fólks.
Virðulegur forseti. Ég vil byrja á því að þakka málshefjanda, Guðmundi Inga Kristinssyni, fyrir að taka þetta mál á dagskrá og hrósa honum fyrir staðfestu og eftirfylgni í þessum málaflokki.
Sá hópur sem hér um ræðir er í mjög viðkvæmri stöðu og þarf því á sterkum málafylgjumönnum að halda hér á hinu háa Alþingi. Stuðningsþjónusta við þennan hóp verður að vera í samræmi við þarfir hans en þar eru hins vegar verulegar brotalamir. Sá góði ásetningur sem kom fram í endurskoðun laga um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir, frá árinu 2018, hefur því miður ekki náð fram að ganga og það kostnaðarmat sem fylgdi þessari breytingu var í engu samræmi við þá þjónustu sem ætlað var að veita samkvæmt lögum. Það kom strax fram á árinu 2018 að um verulega vanfjármögnun var að ræða og það hefur haldist æ síðan þrátt fyrir að ríkisstjórnin hafi lagt til einhverja fjármuni á síðasta ári. Samkvæmt frumvarpinu frá 2018 var gert ráð fyrir að NPA-samningar, samningar um notendastýrða aðstoð, væru 172 árið 2022 en mér sýnist að sú upphæð hafi dugað fyrir 90 samningum. Því er fjöldi einstaklinga sem ekki fær þá þjónustu sem skylt er að veita samkvæmt lögunum. Sveitarfélögin halda því fram að ríkið skuldi sveitarfélögunum vel á annan tug milljarða vegna þessa og það dregur auðvitað úr getu sveitarfélaga til að sinna annarri mikilvægri þjónustu. Þá liggur fyrir að biðlistar eftir slíkum samningum eru talsverðir hjá sveitarfélögunum og hjá Reykjavíkurborg er staðan þannig að 28 einstaklingar eru á biðlista eftir slíkum samningi. Þessir samningar myndu kosta 966 millj. kr., þar af væri hlutur borgarinnar 725 millj. kr. til viðbótar við þann kostnað sem nú þegar er til staðar. Þetta þarf að laga.