Málefni fatlaðs fólks.
Frú forseti. Ég vil byrja á að þakka hv. þm. Guðmundi Inga Kristinssyni fyrir að hefja þessa umræðu hér í þinginu. Það hefur því miður verið gegnumgangandi í tengslum við málefni fatlaðs fólks um alllanga hríð að ef það er eitthvað sem ríkisstjórninni hefur tekist illa til með þá er það væntingastjórnun hvað varðar orð annars vegar og efndir hins vegar. Við sjáum bara það sem komið hefur verið inn á í ræðum hér á undan hvernig gengið hefur að framfylgja lögum og reglum sem þó eru í gildi varðandi NPA-þjónustu og þær í rauninni hóflegu heimtur sem hafa orðið hvað varðar fjölda slíkra samninga.
Hæstv. ráðherra kom inn á það í byrjun í inngangsræðu sinnar að nú væri unnið hörðum höndum að því að innleiða samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks í íslenskan rétt. Mig langar, ef hæstv. ráðherra hefur svigrúm til þess í seinni ræðu sinni, að spyrja hvaða kostnaðarmat liggi fyrir og með hvaða hætti þeim kostnaði verði mætt svo að þetta verði ekki enn ein aðgerðin sem endar á að verða hvorki fugl né fiskur, vekur væntingar sem ekki er innstæða fyrir, rétt eins og hefur því miður orðið raunin að nokkru leyti með NPA-kerfið sem hér var komið á. Því að ef það er eitthvað sem fer illa í þá hópa sem fyrir standa veikir þá er það þegar væntingar eru blásnar upp en ekki staðið við þegar á reynir. Ég vil bara að við hér í þinginu gerum þetta allt saman með opin augun þannig að þannig að orð og efndir fari saman eins og nokkur kostur er í þessum efnum.