Málefni fatlaðs fólks.
Frú forseti. Ég vil þakka fyrir það framtak að efna til þessarar umræðu og mig langar að nýta tímann til að ræða um réttindagæslu fyrir fatlað fólk. Það var nefnilega nöturlegt að lesa umfjöllun í Heimildinni á dögunum um réttindagæsluna og samskipti hennar við ráðuneytið sem hún heyrir undir. Þar kom fram hjá Freyju Haraldsdóttur, sem vann við réttindagæslu, að ráðuneytið hefði reynt að hræða hana frá því að sinna og fjalla opinberlega um aðstæður manns sem leitaði til réttindagæslunnar. Þar sagði Freyja, með leyfi forseta:
„Við höfum einfaldlega verið skömmuð fyrir að benda ráðuneytinu á ef það sinnir ekki skyldum sínum við fatlað fólk […] Ég upplifði þetta auðvitað eins og þöggunartilburði og hræðslutaktík. Þótt vissulega hafi ég ekki látið þetta hafa nein áhrif á mig, þá var þetta óþægilegt. En þetta var engu að síður allt tilraun til að reyna að koma í veg fyrir að ég sinnti skyldu minni og gætti að réttindum manns gagnvart stjórnvöldum, sem voru augljóslega ekki að gæta að hans rétti.“
Þetta er auðvitað óboðlegt og vert að taka fram að einstaklingurinn sem þarna á hlut að máli var í alveg sérlega viðkvæmri stöðu.
Það hefur lengi verið bent á að það sé ótækt að sá sem gætir hagsmuna fatlaðs fólks oftar en ekki gagnvart ráðuneyti sé á sama tíma undir stjórn þessa sama ráðuneytis. Þannig hefur þetta verið á Íslandi allt of lengi og þótt við séum núna mögulega að breyta þessu hér í þinginu í vetur þá segir þetta því miður allt of mikla sögu um það hvernig við umgöngumst réttindi fatlaðs fólks.
Mig langar því að spyrja hæstv. ráðherra hvort þessi frásögn hafi orðið tilefni einhverrar vinnu eða sérstakra viðbragða eða skoðunar innan ráðuneytisins, því að svo sannarlega á þetta ekki að vera viðmótið sem mætir fötluðum í ráðuneytinu sem fer með málaflokkinn. Það á ekki að kalla réttindagæslumennina á teppið fyrir það eitt að gæta að hagsmunum fatlaða, fyrir það eitt að vinna vinnuna sína. Við viljum nefnilega samfélag þar sem öllum en ekki bara sumum er gert kleift að blómstra á eigin forsendum, að menntun, störf, aðgengi og mannréttindi séu almenn en byggi ekki á manngreinaráliti.