Málefni fatlaðs fólks.
Virðulegur forseti. Ég vil byrja á því að þakka hæstv. ráðherra og öllum þeim sem tóku til máls hér í dag við þessa umræðu. Niðurstaða umræðunnar liggur eiginlega ljós fyrir: Við þurfum og eigum að lögfesta samning Sameinuðu þjóðanna um málefni fatlaðs fólks strax og einnig viðauka hans. Við megum ekki gleyma viðaukanum vegna þess að hann gefur kæruleiðir.
Það kom hér fram að við ættum að þakka fyrir það að við séum með frítekjumörk í málefnum fatlaðs fólks upp á 200.000 kr. á mánuði. En það er ekki rétt, það gildir ekki fyrir alla. Við erum með svo ótrúlega bútasaumað kerfi sem veldur því að skattskyldar tekjur skerða; húsnæðisstuðningur skerðir, aldurstengd uppbót skerðir, sérstaka uppbótin skerðir, þannig að þegar búið er að skerða marga bótaflokka þá loksins fer 200.000 kr. frítekjumarkið að tikka. Þessar hindranir þarf og á að taka út.
En hvað er fötlun? Jú, hún er af ýmsu tagi og ýmsar orsakir geta einnig verið fyrir henni. Fólk getur bæði verið fatlað frá fæðingu og fötlun verið afleiðing veikinda eða slysa eða um einhverja erfðasjúkdóma er að ræða. Þetta sýnir að fötlun getur verið af ýmsu tagi og fyrir henni ýmsar orsakir. Á vef Mannréttindaskrifstofu Íslands segir m.a. að í íslenskum lögum liggi ekki fyrir afmörkuð skilgreining á því hvað fötlun er. Hugtakið sé í stöðugri þróun og því ólíklegt að nokkurn tíma muni liggja fyrir endanleg skilgreining á því hvað það er. Niðurstaðan: Erum við þá ekki bara öll fötluð á einhvern hátt, á einn eða annan veg? En það gefur okkur enga afsökun fyrir því að láta þá verst settu sitja eftir í súpunni með sína fötlun án stuðnings, (Forseti hringir.) að láta einstaklinga liggja hjálparvana í rúmi allan sólarhringinn, alla daga, og það jafnvel á hjúkrunarheimili.