154. löggjafarþing — 32. fundur,  15. nóv. 2023.

Viðbrögð vegna atburðanna á Reykjanesskaga, munnleg skýrsla mennta- og barnamálaráðherra.

[16:34]
Horfa

Magnús Árni Skjöld Magnússon (Sf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég vil byrja á að þakka hæstv. mennta- og barnamálaráðherra fyrir hans munnlegu skýrslu um þetta mikilvæga mál. Þetta er sennilega mikilvægasta málið sem við getum verið að ræða hér á þessari stundu. Mér er, eins og okkur svo mörgum, ofarlega í huga örlög þeirra barna sem hafa þurft að flýja heimili sitt í Grindavík. Það er erfitt að ímynda sér hvernig barnssálin tekur á því að lenda í aðstæðum sem þessum. Það er ánægjulegt að heyra um það teymi sem hefur verið komið á fót með þátttöku sveitarfélagsins og um það samstarf sem er fyrirhugað við sveitarfélagið, því að málefni grunnskólans og leikskólans eru auðvitað á höndum sveitarfélagsins og mikilvægt að það sé vel innvolverað í öll þessi atriði. Þarna eru 555 börn á grunnskólaaldri og 173 í leikskóla.

Mig langar til að spyrja hæstv. ráðherra, af því að hann nefndi hér áðan að það hefði verið komið á fót sálfélagslegum stuðning í Tollhúsinu, hvort það væri hugsað fyrir því að taka það skref kannski aðeins lengra og huga að sálrænum stuðningi við þessi börn. Eins langar mig að spyrja hvort það séu komnar fram einhverjar hugmyndir um aðgerðir til að styðja við frístundir, en í Grindavík eru 86 börn í tónlistarskóla. Í þriðja lagi hvort það hafi verið hugað sérstaklega að upplýsingaflæði til barna, því að nú vitum við að börn heyra miklu meira en við höldum og þær fréttir sem bylja á okkur geta valdið þeim ugg um það að bærinn þeirra og það líf sem þau þekkja sé að hverfa.