154. löggjafarþing — 32. fundur,  15. nóv. 2023.

Viðbrögð vegna atburðanna á Reykjanesskaga, munnleg skýrsla mennta- og barnamálaráðherra.

[16:36]
Horfa

mennta- og barnamálaráðherra (Ásmundur Einar Daðason) (F) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir og deili þeim áhyggjum sem þingmaðurinn viðrar hér um mikilvægi þess að við náum að tryggja þessum börnum nauðsynlega þjónustu, nauðsynlega sálfræðiaðstoð, áfallaaðstoð. En um leið segi ég eins og ég sagði í minni ræðu að það er gríðarlega mikilvægt að Grindavíkurbær og sú stjórnsýsla sem þar er og sú þjónusta sem þar er fyrir hendi leiði þá vinnu. Við erum að koma inn í það með öllum þeim hætti sem við getum og það sama á við um aðra aðila. Reykjavíkurborg og nágrannasveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu hafa verið að kortleggja til að mynda húsnæði til frístundaiðkunar og upplýsingaflæði til bæði foreldra og barna veit ég að er í vinnslu eða á leiðinni út frá Grindavíkurbæ. Það er mikilvægt, og ég ítreka það, að stjórnsýslunni í Grindavík, sem var í rauninni að koma sér upp aðstöðu bara í morgun, sé gert kleift að sinna sínum mikilvægu verkefnum. Það sem við höfum kappkostað að gera, og allir þeir aðilar sem hafa komið að, er að styðja við stjórnsýsluna í Grindavíkurbæ til að mæta þessu. Þau atriði sem hv. þingmaður nefndi hér, sálrænn stuðningur, áfallaaðstoð og upplýsingaflæði, bæði til foreldra en líka sérsniðið til barna, og frístunda- og tómstundaiðkun, eru öll undir í þeirri vinnu.