Viðbrögð vegna atburðanna á Reykjanesskaga, munnleg skýrsla mennta- og barnamálaráðherra.
Virðulegi forseti. Ég tek undir með hv. þingmanni um mikilvægi þess að taka utan um foreldrana. Þar er það auðvitað ekki bara áfallið heldur bætast við húsnæðisáhyggjur, fjárhagsáhyggjur og fleira sem kannski kemur ekki beint inn á mitt borð í mínu ráðuneyti en ég veit að er verið að sinna í samstarfi annarra aðila, bæði innan ríkisstjórnarinnar en líka í samstarfi við Grindavíkurbæ. Þegar kemur að starfsfólki sem er að vinna með börnum, hvort sem er í stjórnsýslunni eða skólanum, hefðbundnir kennarar, skólastjórnendur eða aðrir, þá eru þau auðvitað að glíma við sömu áföll og sömu áskoranir með sín börn og sínar fjölskyldur og allir aðrir þegar svona gerist. Grindavíkurbær er að taka utan um þetta og býður einnig starfsfólki sem vinnur með börnum handleiðslu, þannig að það er hluti af þeim aðgerðum sem eru þar í vinnslu og við munum styðja við það samkvæmt óskum og beiðnum Grindavíkurbæjar.