154. löggjafarþing — 32. fundur,  15. nóv. 2023.

Viðbrögð vegna atburðanna á Reykjanesskaga, munnleg skýrsla mennta- og barnamálaráðherra.

[16:40]
Horfa

Inga Sæland (Flf) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir þessa skýrslu og mig langar til að taka undir mikilvægi þess sem hv. þm. Magnús Árni Skjöld Magnússon nefndi í andsvari við ráðherrann hér á undan mér, það skiptir miklu máli að taka utan um samfélagið í heild sinni, foreldra, börn, jafnvel þá sem hæstv. ráðherra nefnir að sinni stjórnsýslu og þurfi að taka utan um sveitarfélagið og aðra þá sem koma að umönnun og utanumhaldi með börnunum í Grindavík. Það liggur alveg á borðinu að það þolir enga bið að koma með áfallahjálpina og sálgæsluna, sálarþjónustuna. Það þolir ekki bið vegna þess að það er núna sem fólk er að ganga í gegnum þetta gríðarlega áfall. Það á eftir að skella á mun grimmar skömmu síðar. Ég hef gjarnan líkt þessu við það þegar maður er að ganga í gegnum sorgarferli og maður missir ástvin, maður áttar sig ekki á því í rauninni og er í ákveðinni afneitun þó nokkuð lengi meðan maður er að ganga inn í það ferli. Ég býst við því að þannig líði Grindvíkingum núna sem eru í rauninni algerlega í óvissu um framtíðina. Ég tel að það sé afskaplega mikilvægt og efast ekkert um það að við öll, alþingismenn og allir sem að málum koma, stöndum sem klettur að baki Grindvíkingum og við munum fylgja því eftir að sálgæslu og utanumhaldi, áfallahjálpinni, verði komið á strax því að það er þörf á því. Ég spyr þess vegna hæstv. ráðherra hvort það sé í rauninni á borðum núna að koma þessari áfallahjálp á strax fyrir alla sem þess þurfa og það verði engin töf og engin bið á því.