154. löggjafarþing — 32. fundur,  15. nóv. 2023.

Viðbrögð vegna atburðanna á Reykjanesskaga, munnleg skýrsla mennta- og barnamálaráðherra.

[16:42]
Horfa

mennta- og barnamálaráðherra (Ásmundur Einar Daðason) (F) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég get ekki annað en verið 100% sammála hv. þingmanni um mikilvægi þess að gripið sé inn í. Eins og hefur verið í fréttum í dag var verið að opna Tollhúsið sem miðstöð til að geta haldið utan um þetta og Grindavíkurbær leiðir þá vinnu. Ég veit að það hafa farið fram samtöl við Rauða krossinn en við í ráðuneytinu höfum líka verið í samtölum við Grindavíkurbæ um hvernig við stígum inn í þetta eða réttara sagt, hvernig Grindavíkurbær getur veitt þá þjónustu, handleiðslu og annað slíkt. Það eru allir að hlaupa eins hratt og þeir mögulega geta í þessu. En ég ítreka og undirstrika aftur mikilvægi þess að það fari í gegnum Grindavíkurbæ sjálfan vegna þess að þau eru jú með þekkinguna, þau eru stjórnkerfið, þau eru samfélagið og við þurfum að taka utan um þetta á þeim forsendum. Ég er 100% sammála hv. þingmanni og við munum styðja við Grindavíkurbæ og samfélagið þar með eins miklu afli og nauðsynlegt er.