154. löggjafarþing — 32. fundur,  15. nóv. 2023.

Viðbrögð vegna atburðanna á Reykjanesskaga, munnleg skýrsla mennta- og barnamálaráðherra.

[16:44]
Horfa

Inga Sæland (Flf) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svarið. Já, þau eru stjórnsýslan. En staðreyndin er sú að sú stjórnsýsla er líka í áfalli því að allir þeir einstaklingar sem eru í stjórnsýslunni í Grindavíkurkaupstað eru í áfalli. Það er þakkarvert að það skuli vera búið að opna þessa miðstöð niður í Tollhúsi. Það er svona meira til þess að Grindvíkingar geti hist og stutt hver við annan og slíkt. Ég er að tala um að það er nauðsynlegt að við tryggjum að það sé tekið utan um hvern og einn. Það eru allir í áfalli. Það er náttúrlega mjög stutt síðan og þetta er þriðji dagurinn sem börnin eru ekki í skólanum sínum og náttúrlega ekki enn þá komið í ljós hvað verða vill hvað það varðar. En spurningin er líka þessi til hæstv. ráðherra: Hvernig er staðan í rauninni, hvernig geta skólarnir tekið á móti þessum börnum? Er ekki verið að vinna í því af fullum þunga? Hvernig er staðan með búsetu barnanna sem hafa þurft að flýja heimili sín? Eru þau öll komin í skjól og (Forseti hringir.) eitthvert öryggi sem tryggir að þau geti farið í einhvern ákveðinn skóla þegar þar að kemur?