154. löggjafarþing — 32. fundur,  15. nóv. 2023.

Viðbrögð vegna atburðanna á Reykjanesskaga, munnleg skýrsla mennta- og barnamálaráðherra.

[16:45]
Horfa

mennta- og barnamálaráðherra (Ásmundur Einar Daðason) (F) (andsvar):

Virðulegi forseti. Vegna þess hversu mikið áfall þetta er fyrir samfélagið í heild sinni þá erum við að aðstoða íbúa í Grindavík og forystufólk Grindavíkur við það, m.a. þarf kaupa aðkeypta áfallaþjónustu, hvernig hægt er að koma inn í það o.s.frv. Með sama hætti er varðar skólamálin sem hv. þingmaður nefndi, það er eitt af því, eins og kom fram í minni skýrslu, sem verið er að vinna að á fullu, að kortleggja og ná utan um það hvar börnin er, með hvaða hætti, hvaða lausnir gætu hentað hverjum og einum. Grindavíkurbær hefur ákveðnar hugmyndir í því og það er verið að vinna út frá þeim hugmyndum og við erum að setja það afl og þann stuðning inn í þetta sem nauðsynlegur er til þess að Grindavík sem samfélag geti fengið þann stuðning sem það þarf á að halda.