Viðbrögð vegna atburðanna á Reykjanesskaga, munnleg skýrsla mennta- og barnamálaráðherra.
Virðulegi forseti. Já, ég treysti því að allir flokkar hér á þingi verði, eins og ég sagði í minni skýrslu, tilbúnir til þess að bakka upp það sem þarf gagnvart Grindavík, hvort sem það tengist fjármagni eða því frumvarpi sem við ræddum hér varðandi varnargarða eða annað. Þegar kemur að félagslega veikari hópum, þegar kemur að fólki sem á ekki eins mikið bakland og aðrir, m.a. í málefnum innflytjenda, þá er það einmitt ástæðan fyrir því að það er svo mikilvægt að hlusta á Grindavíkurbæ, vinna djúpt og þétt með Grindavík og fólkinu sem þar er, vegna þess að það er baklandið hjá veikari hópunum. Þar er þekkingin, þar er reynslan. Þar er það afl sem við þurfum að ná að virkja. Meira að segja þó að þessir einstaklingar séu að glíma við miklar áskoranir sjálfir, þá finnur maður eljuna og kraftinn hjá þessu fólki til að hugsa um samfélagið sitt. Það er það sem við þurfum að byggja undir. (Forseti hringir.) Ég held að lausnirnar sem þurfa að fæðast upp úr þessu, m.a. gagnvart innflytjendum, fæðist ekki hjá mennta- og barnamálaráðherra, þær fæðast ekki hjá einstaka þingmönnum. (Forseti hringir.) Þær fæðast hjá fólkinu sjálfu í Grindavík og það er það sem við þurfum að bakka upp.