Viðbrögð vegna atburðanna á Reykjanesskaga, munnleg skýrsla mennta- og barnamálaráðherra.
Frú forseti. Ég vil þakka fyrir þessa umræðu hér og þakka hæstv. ráðherra fyrir að eiga orðastað við okkur um þetta mál. Ég vil nefna það hérna að ég tek heils hugar undir að það skiptir mjög miklu máli að fólkið sem starfar alla jafna í stjórnsýslu í Grindavík sé vel haft með í ráðum og íbúarnir líka. Það gefur auðvitað augaleið að það er uppskrift að því að betur gangi að skipuleggja viðbrögð en ella. Ég geri mér líka grein fyrir því að þetta er flókið verkefni gagnvart Grindvíkingum, það eru svo margir þættir sem þarf að huga að. Sumt er hægt að sjá fyrir, annað er ekki hægt að sjá fyrir. Sumt er hægt að skipuleggja mjög vel í tíma, annað er flóknara úrlausnar.
Ég hef sjálfur viðrað það að mér finnst sérstakt að íbúar Grindavíkur þurfi að hafa áhyggjur af næstu mánaðamótum og þar næstu þegar svona stendur á hvað varðar greiðslu af lánum og annað þess háttar. Þar finnst mér að ríkisvaldið ætti að geta stigið kröftuglega inn. Ég vil líka nefna það í þessu samhengi að við þekkjum það auðvitað, Íslendingar, að það eru byggðir á svæði sem eldgos og jarðhræringar geta ógnað. Við þekkjum þetta undir Vatnajökli. Við þekkjum þetta mjög vel hér á Reykjanesinu. Við þekkjum þetta í Vestmannaeyjum og víðar. Þess vegna held ég að það sé ekkert ofmælt að það sé vel hægt að gera þá kröfu á stjórnvöld á hverjum tíma að menn geti verið undirbúnir eins og hægt er. Hvað varðar þessar jarðhræringar og mögulegt eldgos þá er það líka búið að liggja fyrir í einhvern tíma að byggðinni í Grindavík gæti staðið ógn af þessari náttúruvá og því langar mig að spyrja: Hvaða vinna eða plan var til í ráðuneytinu áður en þetta almannavarnaástand myndaðist núna? Voru menn í mennta- og barnamálaráðuneytinu, sérfræðingar þar, farnir að kortleggja mögulegar sviðsmyndir ef það færi svo að byggð, til að mynda í Grindavík, annars staðar á Reykjanesi, við getum talað um Vellina í Hafnarfirði eða jafnvel víðar um landið, væri í hættu ef eitthvað svona gerðist? Vegna þess að þetta er öðruvísi að mörgu leyti en stundum með ofanflóðin. Hérna er um að ræða stór sveitarfélög sem stundum getur þurft að yfirgefa mjög lengi.