154. löggjafarþing — 32. fundur,  15. nóv. 2023.

Viðbrögð vegna atburðanna á Reykjanesskaga, munnleg skýrsla mennta- og barnamálaráðherra.

[16:56]
Horfa

mennta- og barnamálaráðherra (Ásmundur Einar Daðason) (F) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég vil bara byrja á því að taka undir með hv. þingmanni um fjárhagslegar áhyggjur fólks sem er úr Grindavík. Ég veit að það er eitt af því sem m.a. félagsmálaráðherra hefur á sinni könnu og önnur ráðuneyti en líka einstaka fyrirtæki, þannig að það er ástæða til þess að hvetja til þess að fyrirtækið feti þá braut. En ríkisvaldið mun þurfa að koma þar inn líka. Við höfum auðvitað talsverða reynslu af þéttara samstarfi ríkis og sveitarfélaga í gegnum m.a. Covid-faraldurinn en ekki hvað síst í gegnum farsældina, vegna þess að það sem þetta snýst um, reynslan sem við erum að fá núna úr innleiðingu farsældarlaganna og samhliða Covid-faraldrinum, er miklu þéttara samtal og samvinna á milli ríkis og sveitarfélaga til að bregðast við. En þetta mál er líka þess eðlis að þegar náttúruhamfarir skella á er erfitt að hafa nákvæmlega svörin við því til hvaða aðgerða á að grípa og með hvaða hætti, vegna þess að þetta er svo ólíkt, það er svo ólíkt bara eftir því hvernig náttúruváin steðjar að. En lykilatriði er samtalið og samvinnan og að við séum tilbúin til að leggja til hliðar hefðbundin stjórnsýslusíló og verkferla og förum að vinna þéttar saman og það höfum við gert í þessu efni. Þar erum við að nýta mikið reynsluna úr Covid-faraldrinum en líka þá hugsun sem farsældin byggir á sem miðar að því að öll stig vinni saman, allir aðilar vinni saman þvert á kerfi og við erum að virkja þá reynslu og þá þekkingu mjög mikið þessa dagana.