Viðbrögð vegna atburðanna á Reykjanesskaga, munnleg skýrsla mennta- og barnamálaráðherra.
Frú forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir að koma hingað til að flytja þinginu munnlega skýrslu sína um efnið. Það er búið að koma inn á hér í andsvörum margt af því sem ég hafði ætlað mér að nefna og ég held að þingið heilt yfir sé á þeim stað að við gerum það sem þarf og gerum það sem hægt er til að styðja við Grindvíkinga og bæjarfélagið til að ráða við þau áföll sem gengið hafa yfir, það er rétt að segja í byrjun. En í ljósi mánudagsins og hvernig hann atvikaðist gagnvart fjármögnun varnargarðsins langar mig til að spyrja hæstv. ráðherra hvort eitthvert mat liggi fyrir hvað varðar kostnað þeirra aðgerða sem undir hans ráðuneyti heyra. Ég átta mig á því að það er mikil óvissa í þessu enn þá en það verður auðvitað að ramma málin með þeim hætti að annaðhvort setji ríkisstjórnin sig í þá stöðu að forgangsraða fyrir hagsmuni Grindavíkur hvað fjármuni ríkissjóðs varðar á næstunni eða fara í einhverja þá varasjóði sem stjórnvöld hafa úr að spila. Mér finnst ekki tæk leið að horfa til þess að við gerum aftur það sem var gert hér á mánudaginn, að það verði lagt á sérstakt gjald vegna aðgerða þarna á svæðinu.
Mig langar að spyrja hæstv. ráðherra hvort það liggi fyrir eitthvert frummat á kostnaði sem að hans ráðuneyti snýr og hins vegar hvernig hæstv. ráðherra sjái fyrir sér að þær aðgerðir verði fjármagnaðar. Verður það með núverandi ráðstöfunarsvigrúmi ráðuneytisins eða með öðrum hætti?