Viðbrögð vegna atburðanna á Reykjanesskaga, munnleg skýrsla mennta- og barnamálaráðherra.
Virðulegi forseti. Eins og ég rakti hérna í skýrslunni sjálfri er stjórnsýsla Grindavíkurbæjar að komast almennilega af stað fyrst í dag. Það er verið að kortleggja hvar fjölskyldur og börn eru. Það er verið að teikna upp mögulegar aðgerðir, sviðsmyndir í skólamálum. Það er verið að teikna upp hvernig samtali við foreldra og börn verður háttað, hvaða sálfræðiaðstoð og -þjónustu þarf, hvernig hægt verður að koma frístund af stað. Á þessum tímapunkti erum við í þessari grunnvinnu nokkrum dögum á eftir, við erum að setja allt það starfsfólk ráðuneytisins sem Grindavík þarf á að halda til aðstoðar og stuðnings við þetta verkefni eins og óskað er eftir, ýtum öðrum verkefnum til hliðar. Ég veit að Samband íslenskra sveitarfélaga er að gera slíkt hið sama og önnur sveitarfélög, ég nefndi Reykjavíkurborg og mörg sveitarfélög á höfuðborgarsvæðinu. Á þessum tímapunkti er ekki raunhæft að leggja fyrir hver kostnaðurinn verður við aðgerðir vegna þess að menn eru enn þá að reyna að teikna upp nákvæmlega hvernig þær munu líta út. Það væri algjörlega óraunhæft að mennta- og barnamálaráðherra kæmi hér og segði hver kostnaðurinn við þessar aðgerðir yrði á þessum tíma. En ég vil líka segja, af því að það hefur verið nefnt hér áður, að það er gríðarlega dýrt fyrir samfélagið ef við tökum ekki utan um ungt fólk og börn og barnafjölskyldur í Grindavík vegna þess að það er fjárfesting, vegna þess að við sjáum og getum lært það af áföllum almennt, náttúruhamförum og breytingum eins og þessum, að það er gríðarlega mikilvægt fyrir samfélagið til lengri tíma litið að við stígum þarna inn. Hluti af þeirri vinnu er, það er hárrétt hjá hv. þingmanni, á einhverjum tímapunkti, á allra næstu dögum eða vikum, að meta hver kostnaðurinn við slíkt yrði af hálfu ríkisins og þá þarf að koma með það hér til þingsins. Annaðhvort að nýta varasjóði eða sækja fjármagn með öðrum hætti eftir þeim aðferðum og leiðum sem við höfum búið til hér með fjárveitingavaldi úr sameiginlegum sjóðum.