Viðbrögð vegna atburðanna á Reykjanesskaga, munnleg skýrsla mennta- og barnamálaráðherra.
Frú forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra svarið. Ég held að hann þurfi ekki hafa neinar áhyggjur af því að nokkur þingmaður sé að leggja til að ekki verði tekið utan um börn og fjölskyldur í Grindavík. Á morgun verður liðin vika frá því að ákvörðun um rýmingu var tekin. Mig langar hér í seinna andsvari að spyrja hæstv. ráðherra hvar honum þykir veikasti hlekkurinn vera, ef svo má segja, gagnvart hagsmunum barna frá Grindavík. Það einskorðast ekki endilega við málaflokka ráðherrans, mál sem tengjast börnum koma auðvitað inn á hina ýmsu flokka ríkisstjórnarinnar og málasvið ýmissa ráðherra. Til hvers metur hæstv. ráðherra að helst þurfi að horfa umfram það sem nú þegar er búið að skoða hvað hagsmuni og utanumhald barna varðar?