Viðbrögð vegna atburðanna á Reykjanesskaga, munnleg skýrsla mennta- og barnamálaráðherra.
Virðulegi forseti. Ég vil byrja á því að þakka hæstv. mennta- og barnamálaráðherra fyrir góða yfirferð á áherslum sínum í málaflokki barna sem búa í Grindavík og standa frammi fyrir þeirri óvissu sem ráðherra hefur lýst ágætlega. Ég fagna því sömuleiðis, og mér finnst ágætt að nefna það sérstaklega, að sá ráðherra sem tekur hér til máls fyrst á eftir hæstv. dómsmálaráðherra, ráðherra almannavarna, sé einmitt ráðherra málefna menntamála og barna. Ég lít svo á að velferð þeirra skipti öllu máli fyrir þá uppbyggingu sem koma skal og ég vona svo sannarlega að þetta endurspegli þann fókus og áherslur sem stjórnvöld vilja sýna í verki í tengslum við hana og eins og við jafnaðarmenn leggjum jafnan mikla áherslu á þá ætlum við okkur öll að standa með Grindavík í þeim hamförum sem á dynja. Við vitum líka að þjóðin ber öll vilja til þess en okkur greinir stundum á um aðferðir og leiðir til að ná settum markmiðum. Þannig er nú einu sinni lífsins eðli.
Það að standa með þessum hópi felur ýmislegt í sér. Við jafnaðarmenn sýndum það á mánudaginn t.d. að við töldum okkur ekki stætt á öðru en að styðja neyðarviðbrögð í uppbyggingu varnargarða án sérstakra fyrirvara. Það væri einfaldlega of brýnt verkefni. Við skulum vona að Alþingi þurfi ekki að koma aftur saman með þeim hætti sem raungerðist þá en hins vegar verðum við alveg að hafa það á hreinu að afkomuöryggi fólks, tengslanet, er algjör forsenda fyrir því að geta liðið vel í samfélagi og bara litið bjartan dag í þeirri óvissu sem við stöndum frammi fyrir. Skóli, vinna, fjölskylda, vinir, tómstundir — þetta eru ekki gerviþarfir, þetta eru grundvallarlífsgæði. Ef við bregðumst í því verkefni að taka þétt utan um Grindvíkinga sem búa við þessa óvissu, sérstaklega fjölskyldufólk, þá gætum við hreinlega búið til óafturkræfan skaða sem verður ekki mældur í krónum. Ég legg því áherslu á að við í Samfylkingunni ætlum að gera kröfur um það, ber þess merki í umræðum sem hafa verið hér í dag, að það verði skýr vettvangur leik- og grunnskólahúsnæðis sem allra fyrst, hvort sem það er á einum stað eða fleiri og að ríkið styðji þar rausnarlega við sveitarfélögin sem fái að leiða þetta verkefni, vegna þess að við vitum auðvitað að það verður áskorun fyrir þau sveitarfélög sem koma til með að hjálpa og leggja sitt af mörkum í þessu verkefni, það má ekki gera lítið úr því. Ég veit að Reykjavíkurborg hefur stigið fram núna með ýmsum hætti. Bæjarskrifstofur Grindavíkur hafa fundið sér stað á annarri hæðinni í Ráðhúsinu og Tollhúsið er nýtt sömuleiðis til mikilvægra verkefna.
Þetta er bara byrjunin en við vitum að þessi málaflokkur er viðkvæmur í mjög mörgum sveitarfélögum fyrir. Það eru 555 börn skráð í Grunnskóla Grindavíkur, 173 börn eru í leikskólum bæjarins. Það eru 440 börn iðkendur hjá Ungmennafélagi Grindavíkur. Þar eru fleiri börn sem stunda margar íþróttir, þ.e. börn sem stunda fleiri íþróttir en eina. Allir þessir aðilar verða að fá þá upplifun að við séum að gera allt sem í okkar valdi stendur til að halda utan um þau. Við megum ekki láta börn sem komast í tæri við þessa þjónustu, þ.e. börn sem eru ekki beinlínis hluti af þeim íbúum Grindavíkur — að þau séu einhvern veginn sett til hliðar, ekki að ég hafi af því sérstakar áhyggjur.
Ég fagna því líka að hæstv. ráðherra hyggist leggja áherslu á sálfélagslegan stuðning. Við megum heldur ekki gleyma því að staða viðkvæmra barna, þ.e. fatlaðra barna og þeirra sem koma frá jaðarsettum samfélögum — og ég legg sérstaklega áherslu á aðflutta Íslendinga, nýja Íslendinga. Við verðum að reiða okkur á þétta samvinnu og við getum ekki séð fram á að deilur hér á milli ríkis og sveitarfélaga muni koma til með að taka yfir.
Þetta er okkar fókus, okkar jafnaðarmanna. Mennta- og barnamálaráðherra hefur til þessa verið óragur við að teikna upp metnaðarfullar áætlanir í málaflokknum. Það mun ekki standa á okkur að veita stuðning inn í þessi verkefni en ég bara leyfi mér þó að fullyrða að ríkisstjórnin hefur mjög ærið verkefni fyrir höndum. (Forseti hringir.) Það mun kosta og það verða háar fjárhæðir en höfum það hugfast að það verður svo miklu kostnaðarsamara að vanrækja verkefnið.