154. löggjafarþing — 32. fundur,  15. nóv. 2023.

Viðbrögð vegna atburðanna á Reykjanesskaga, munnleg skýrsla mennta- og barnamálaráðherra.

[17:24]
Horfa

Andrés Ingi Jónsson (P):

Frú forseti. Ég held að við getum ekki gert okkur í hugarlund hvernig það er fyrir heilt samfélag að missa heimilið, hvernig það er fyrir 3.600 manns að missa griðastaðinn sem er heimilið og heimabyggðin öll; að þurfa að leggjast á flótta undan náttúrunni, sitja síðan fjarri heimilinu og fylgjast með því af og til í fréttum, illa farið af skjálftum og vita ekkert hvað framtíðin ber í skauti sér. Þess vegna hefur verið ánægjulegt að sjá hversu sjálfsagt fólki þykir að rétta fram hjálparhönd. Bæði hafa hópar almennings sprottið upp og látið af hendi rakna, ja, bara þá hluti sem þarf til að standa undir daglegu lífi fyrir fólk sem þurfti að skilja allt slíkt eftir í Grindavík en íþróttafélög hafa líka boðið börnum að viðhalda rútínunni með því að mæta á æfingar. Ég verð að viðurkenna að ég hef mætt á einhverja yngrideildarleiki í körfubolta og ég held að það sé alltaf til bóta fyrir íþróttafélögin sem taka á móti grindvískum körfuboltakrökkum, það styrkir þau bara að fá þær týpur inn. Við höfum séð skátafélög úti um allt taka á móti þeim og við sjáum núna sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu leita leiða til að koma öllum þessum börnum í skóla þannig að einhver rútína komist af stað. Þetta skiptir gríðarlega miklu máli til að milda áhrifin af áfallinu sem þau eru öll að ganga í gegnum og til að hjálpa fjölskyldunni að eignast aftur eðlilegt fjölskyldulíf.

Ég tek undir það sem kom fram hjá hæstv. ráðherra áðan að það er mikilvægt að Grindavík leiði þessa vinnu, að fólkið í stjórnsýslu sveitarfélagsins sjálfs sem þekkir þarfir íbúanna best leiði hana en samt þarf ríkisvaldið að átta sig á því að þessi sveitarstjórn er ofhlaðin verkefnum. Þetta er ástand sem býr til þjónustuþörf hjá íbúunum sem er langt umfram allt sem Grindavík hefur nokkurn tímann komið sér upp mannafla til að geta tekist á við, þannig að hluti af því að gera Grindavík kleift að leiða vinnuna er að ríkið axli eitthvað af vinnunni fyrir bæinn.

Ég nefndi í andsvörum við hæstv. ráðherra, sem mig langar að nefna aftur, af því að við vorum að tala um mikilvægi þess — við vorum nú held ég allflest að tala um það hér í andsvörum — að aðgengi að sálfræðiþjónustu á þessum tímum væri greitt fyrir Grindvíkinga til að geta unnið úr áfallinu. Þá langar mig að undirstrika aftur það sem ég nefndi í andsvari varðandi íbúa af erlendum uppruna sem hefðu kannski þörf á því að fá slíka þjónustu á öðru tungumáli en íslensku. Þetta er áskorun sem verður að hafa í huga og hér erum við kannski ekki síður að tala um fullorðna fólkið sem þurfti að flýja Grindavík en það er auðvitað hagsmunamál barna líka vegna þess að foreldrum sem líður illa er erfitt að vera góðir foreldrar. Fyrsta skrefið í að standa sig vel í foreldrahlutverkinu og geta verið til staðar fyrir börnin sín er að líða vel inni í sér.

En fyrr en síðar þá þurfum við að ræða leiðinlegu hliðina á þessu, fjármálahliðina. Það er kannski ágætt að byrja þá umræðu í dag af því að við erum hér síðar í dag að fara að ræða fjáraukalög, þar sem verður vonandi fyrir 2. umræðu hægt að gera tillögur að einhverjum viðbótum til að bregðast við ástandinu í Grindavík. Ef við sláum bara á það, ef 3.600 manns hlaupa út og kaupa sálfræðitíma á taxtaverði, 20.000 kr. kostar tíminn hjá sálfræðingi, þá er einn tími á sveitarfélagið kominn upp í 76 milljónir á markaðsverði. Þetta verða mjög fljótt stórar upphæðir þótt við séum bara að tala um minnstu verkefnin í þessari áskorun sem er fram undan.(Forseti hringir.) Hér hef ég ákveðnar áhyggjur af því fordæmi sem var sýnt á mánudaginn með forvarnagjaldinu (Forseti hringir.) til að standa straum af 2 milljarða kostnaði í verkefni sem gæti hlaupið á tugum eða hundruðum milljarða þegar upp er staðið. (Forseti hringir.) Hér þarf fólk að vera óhrætt við að beita ríkissjóði sem sameiginlegum bakhjarli samfélagsins (Forseti hringir.) frekar en að það þurfi að standa straum af þessum kostnaði í einhverjum ölmusustíl (Forseti hringir.) með því að búa til nýja gjaldtöku fyrir ný verkefni.

(Forseti (OH): Forseti biður hv. þingmenn að gæta að ræðutímanum.)