Viðbrögð vegna atburðanna á Reykjanesskaga, munnleg skýrsla mennta- og barnamálaráðherra.
Virðulegi forseti. Í nígerískum málshætti segir, með leyfi forseta: Það þarf heilt þorp til að ala upp barn. Í flestum samfélögum Afríku er til hugtakið „ubuntu“ sem þýðir ýmist mennska, mannleg reisn, samhjálp eða samfélag og þessi málsháttur er sprottinn úr þeim hugsunarhætti. Þeir Grindvíkingar sem við höfum séð í viðtölum í fjölmiðlum hafa sýnt mikið æðruleysi þar sem þeir standa frammi fyrir skelfilegri þrekraun. Grindavík er augljóslega samheldið samfélag en það er hverjum ljóst sem á horfir hversu óskaplega þungbært það er að þurfa að yfirgefa heimili sín og jarðtengingu í flýti og sjá ekki hvenær eða hvort hægt verður að snúa aftur og þá í hvaða aðstæður.
Fólkið í Grindavík sem flúið hefur heimili sín dreifist nú um Suðurland, Vesturland, Norðurland, Reykjanes og höfuðborgarsvæðið. Í hópi þeirra eru tæplega þúsund börn sem þurfa að horfast í augu við breyttan veruleika. Börn ráða yfirleitt ekki sjálf hvað þau gera og hvert þau fara. Lykilatriði í þeirra aðlögun er að þau upplifi öryggi og að þau geti treyst því að um þau og þeirra þarfir sem barna í þessum aðstæðum verði hugsað. Mikilvægt er fyrir börn að halda í einhvers konar öryggi og reglu mitt í allri þessari óreiðu, að þau komist í skóla og geti sinnt tómstundum en þó jafnvel enn frekar að grindvísk börn haldi sínum tengslum, að bekkjardeildir frá Grindavík finni leiðir til að hittast nokkrum sinnum í viku, kannski á netinu undir handleiðslu kennarans síns. Hér ríður á að við hlustum á vilja Grindvíkinga sjálfra og hvað þeim finnst passa. Það má ekki gleyma því að kennarar og starfsfólk skólanna í Grindavík hafa líka orðið fyrir áfalli og þurft að yfirgefa heimili sín og horfa upp á samfélagið sitt tvístrast. Og ekki má gleyma því að hlúa að foreldrum og aðstandendum þessara barna. Þau þurfa áfallahjálp, það þarf að létta á efnahagsáhyggjum þeirra, þau þurfa að fá ráðrúm til að setja súrefnisgrímuna fyrst á sig sjálf.
Börnin í Grindavík eru núna börnin frá Grindavík, vonandi samt bara í bili og vonandi sjáum við aftur iðandi mannlíf í þessum fallega bæ. En í bili er enginn í Grindavík og Grindvíkingar verða að fóta sig í nýrri tilveru. Og þá kemur röðin að okkur hinum. Okkar ráðherrar eru vakin og sofin í þessari umræðu um stöðu og framvindu mála í Grindavík. Mikið hefur verið kallað eftir miðstöð fyrir Grindvíkinga til að hittast, gráta og hlæja saman og styrkja böndin. Viðbragðsflýtir stjórnvalda gerir það að verkum að nú í hádeginu var þjónustumiðstöð tekin í gagnið í Tollhúsinu þar sem fólkið frá Grindavík getur komið saman og notið stuðnings, ráðgjafar og fræðslu. Ég bind miklar vonir við að þjónustumiðstöðin þjóni því hlutverki sem lagt er upp með og taki þeim breytingum sem þörf er á eftir því sem málum vindur fram.
Grindvíkingar eru af ýmsum þjóðernum og mikilvægt að halda vel utan um fólk með lítið bakland á Íslandi. Þar leikur upplýsingagjöf stórt hlutverk en Ríkisútvarpið, fjölmiðill í almannaþágu, hefur verið með góða upplýsingagjöf og fréttamiðlun á pólsku og ensku.
Virðulegi forseti. Það þarf heilt þorp til að ala upp og annast barn. Nú er þorpið dreift um allt en engu að síður til staðar. Nú þurfum við öll að vera þorpið sem heldur utan um börnin frá Grindavík og fjölskyldur þeirra.