Viðbrögð vegna atburðanna á Reykjanesskaga, munnleg skýrsla mennta- og barnamálaráðherra.
Virðulegi forseti. Það ríkir neyðarástand í Grindavík og nú reynir á samstöðu og samtakamátt þjóðarinnar. Það reynir líka á ríkisstjórn Íslands að stíga fram af festu og koma með plan, plan fyrir fólkið sem upplifir nú þungt högg og lifir við gríðarlega óvissu sem er erfitt að setja sig í spor gagnvart. Viðreisn mun að sjálfsögðu styðja allar aðgerðir sem taka utan um fólkið og draga úr óvissu þess.
Mig langar að vitna í Grindvíkinginn Sigríði Maríu Eyþórsdóttur, kirkjuvörð í Grindavíkurkirkju, sem skrifaði viðhorfspistil í Vísi í dag:
„Sum hver, jafnvel mörg okkar, sjá fram á atvinnumissi, fjárhagslegt hrun og þurfa á sama tíma að framfleyta fjölskyldum á óöruggum og hagnaðardrifnum húsaleigumarkaði um ófyrirsjáanlega framtíð. Þetta eru ekki kaldar kveðju til okkar sem horfum inn í óvissuna, þetta er svívirða.“
Það er alveg rétt að það hafa engin raunveruleg svör komið fram af hálfu stjórnvalda þegar kemur að því að tryggja öryggi fólks sem hefur neyðst til að yfirgefa heimili sitt, lífsviðurværi, og það er skiljanlegt að kallað er eftir skýrum svörum sem snerta þann raunveruleika og þá óvissu sem grindvískar fjölskyldur standa frammi fyrir. Ofan á allt þetta bætist sá veruleiki sem Grindvíkingar búa nú við, að geta ekki svarað einföldum spurningum barna sinna um framtíðina: Hvenær förum við aftur heim? Förum við aftur heim? Hvað verður um Grindavík? Kemst ég á körfuboltaæfingu í vikunni? Get ég leiki við vini mína? Hvar verðum við um jólin? Fer ég í skólann á morgun? Nei, grindvískir foreldrar hafa fá svör við þessum spurningum enda lifa þeir nú í algjörri óvissu.
Það er hlutverk stjórnvalda að milda þetta högg, að koma með svör fyrir fólkið, segja það hátt og skýrt að Grindvíkingar eigi ekki ofan á allt annað að þurfa til að mynda að hafa fjárhagsáhyggjur. Það er eitt að reisa fýsíska varnargarða en nú þarf að reisa varnargarð utan um Grindvíkinga, utan um fólkið okkar, kennara og ekki síst börnin sem eiga rétt á að menntun þeirra og ekki síður íþrótta- og tómstundastarf verði tryggt. Börn skynja stöðuna og finna fyrir óöryggi á heimilinu og við verðum að taka utan um þessa hópa og útskýra vel fyrir öllum börnum hvert ástandið er. Hér skipta auðvitað skólar og íþrótta- og tómstundastarf miklu máli.
Við höfum líka erfiða reynslu, m.a. úr snjóflóðum, og við eigum að þekkja það hvaða áhrif slík áföll hafa á börn. Við eigum að leggja kapp á að vernda barnæskuna. Rannsóknir og reynslan sýnir að það skiptir gríðarlega miklu máli.
Jörð hefur skolfið, virðulegi forseti, á Reykjanesinu með hléum síðan í mars 2021. Það er þekkt að eldvirkni á svæðinu er mikil. Áhætta á þessu svæði þegar kemur að innviðum og byggð hefur legið fyrir í nokkurn tíma. Það kom mér þess vegna nokkuð á óvart þegar hæstv. innviðaráðherra svaraði því til að það hefðu verið búnir til hópar til að kortleggja náttúruvá Reykjanesskagans og suðvesturhornsins en ráðherra vissi ekki hvar sú vinna væri stödd. Það kemur á óvart að eftir hátt á þriðja ár, frá fyrstu eldsumbrotum á Reykjanesskaga, sé lítið sem ekkert plan til staðar frá ríkisstjórninni fyrir grindvískar fjölskyldur, ríkisstjórn sem ítrekað segir að Ísland sé í öfundsverðri stöðu en þegar reynir á er hvorki kortlagning né aðgerðaáætlun tilbúin.
Við Íslendingar kunnum neyðarviðbrögðin nokkuð vel. Við erum með framúrskarandi fólk á sviði almannavarna og björgunarsveitir á heimsmælikvarða. Við kunnum að tryggja rýmingar og þess háttar. En stjórnvöld verða líka að vera tilbúin. Hvað svo? Að vera vakin og sofin, hvað þýðir það? Hvað tekur við? Stjórnvöld hafa haft hátt í þrjú ár en því miður er lítið skýrt á þessu stigi og þá dugar ekki fyrir okkur að hafa ráðherra sem einfaldlega yppta öxlum og segja: Við búum bara á Íslandi, þannig er það.
Ég vil að lokum segja að þessi umræða er mikilvæg og ég vil taka undir það sem hæstv. ráðherra hefur sagt í þessu máli. Mér finnst það skipta máli og það er brýning til stjórnsýslunnar, til skólayfirvalda, bæði í Grindavík sem og annars staðar, að taka höndum saman. Ég skynja að mennta- og barnamálaráðherra gerir sér grein fyrir ábyrgð sinni sem felst í því að taka utan um börnin og fjölskyldur þeirra, að við lærum af fortíðinni og veitum börnunum og fólkinu okkar frá Grindavík öryggi og vissu eftir fremsta megni. Þar hefur hann fullan stuðning okkar í Viðreisn.