154. löggjafarþing — 32. fundur,  15. nóv. 2023.

Viðbrögð vegna atburðanna á Reykjanesskaga, munnleg skýrsla mennta- og barnamálaráðherra.

[17:39]
Horfa

Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir (F):

Hæstv. forseti. Hér er til umræðu munnleg skýrsla hæstv. mennta- og barnamálaráðherra um viðbrögð vegna atburðanna á Reykjanesskaga. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir að fara yfir stöðu mála hér í þingsal því að það er ljóst að þær jarðhræringar sem eiga sér stað á Reykjanesskaga hafa gríðarleg áhrif á daglegt líf og framtíð barna og ungmenna í Grindavík. Rútínan, skóli, íþróttastarf, frístund — þetta er allt farið úr skorðum. Börn og fjölskyldur eru komin í húsnæði um allt land, ýmist inn á heimili annarra, í laust húsnæði eða í orlofsbústaði. Við vitum ekkert hvernig mál munu þróast næstu vikurnar en ef málin þróast þannig að börn frá Grindavík fara að sækja skóla um allt land þá þarf að tryggja að það sé mjög vel haldið utan um nemendurna og kennarana. Kennararnir eru margir farnir að sjá að nemendur þeirra gætu verið komnir í marga mismunandi skóla en þeir eru þeir sem þekkja nemendur sína hvað best. Þeir vita hvað börnin þurfa. Það þarf að tryggja að börnin fái þá aðstoð og kennslu sem þau þurfa og eiga rétt á þegar þau verða tilbúin. Það er ekkert ljóst að þau verði strax tilbúin því þessi börn, þessar fjölskyldur eru margar að ganga í gegnum stærsta áfall lífs síns. Ég get ekki ímyndað mér þá tilfinningu að hafa þurft að rýma heimili sitt og fyrirtæki en ég veit það að við hér munum styðja þau eins vel og við getum.

Það hafa komið fram fjölmargar áskoranir á síðustu dögum og við vitum að það munu koma fleiri áskoranir, þar af leiðandi er mjög gott að heyra af þeirri vinnu sem er farin í gang hjá bæjaryfirvöldum í Grindavík í samstarfi við önnur sveitarfélög og stjórnvöld. Það þarf að ræða þá möguleika sem eru í boði fyrir börn og fjölskyldur sem eru frá Grindavík.

Ég er sammála því sem kom fram í máli hæstv. mennta- og barnamálaráðherra hér áðan, að sú vinna sem er fram undan verði að vera í fullu samráði við bæjaryfirvöld í Grindavík. Það er mikilvægt á öllum stigum þessa máls en líka í öllum öðrum málum sem tengjast Grindavík því stjórnsýslan í Grindavík, starfsfólk sveitarfélagsins eru þau sem þekkja sitt samfélag hvað best, þau hafa verið að vinna í öllum skjölum, þau hafa verið að takast á við félagsþjónustumál og annað, þau þekkja sitt sveitarfélag hvað best. Þegar kemur að því að leysa þeirra mál nú og í framtíðinni þá eru það þau sem þekkja aðstæður hvað best og vita hver besta leiðin er. Aftur á móti eru þessir einstaklingar líka að ganga í gegnum mjög erfitt tímabil þannig að við þurfum að gæta að því að vinna að þessum málum mjög vel. Við sem búum annars staðar og höfum ekki þurft að fara í gegnum svona mál þurfum að gæta að því að hlusta. Ég trúi ekki öðru en að við sem hér erum munum gera það eins vel og við getum og ég get sagt það fyrir mig að ég mun styðja Grindvíkinga eins vel og ég get og vinna að málum fyrir þau til að tryggja framtíðarhorfur þeirra.