ábyrgð og aðgerðir fjármálastofnana varðandi lánamál Grindvíkinga.
Forseti. Grindvíkingurinn Sigríður María Eyþórsdóttir ritaði nýlega grein um framkomu bankanna við Grindvíkinga en þeir ætla sér að rukka fulla vexti og verðbætur af frystum húsnæðislánum Grindvíkinga. Sigríður María segir m.a. í grein sinni, sem birtist nýlega á vísi.is, með leyfi forseta:
„Hér erum við Grindvíkingar, heimilislaus, í framtíðarótta. Sum hver, jafnvel mörg okkar, sjá fram á atvinnumissi, fjárhagslegt hrun og þurfa á sama tíma að framfleyta fjölskyldum á óöruggum og hagnaðardrifnum húsaleigumarkaði um ófyrirsjáanlega framtíð. Þetta eru ekki kaldar kveðju til okkar sem horfum inn í óvissuna, þetta er svívirða. Við húseigendur sem höfum varla haft bolmagn til að greiða af lánum okkar í þeim aðstæðum og vaxtahækkunum sem við höfum staðið frammi fyrir undanfarið, sjáum nú fram á það að í miðjum hörmungum verðum við endanlega slegin af.“
Hæstv. ráðherra hefur lýst því yfir að fjármálastofnanir verði að sýna samfélagslega ábyrgð á svona miklum óvissutímum og skorað á bankana að gera betur. Þá sagðist hún einnig, með leyfi forseta, ætla að „taka á þessu“. Því vil ég spyrja hæstv. ráðherra: Hvernig ætlar ráðherrann að taka á þessu? Ætlar hann að grípa til einhverra aðgerða eða ætlar hann að láta sér nægja að biðla til samfélagslegrar ábyrgðarkenndar bankastofnana og vona það besta?