ábyrgð og aðgerðir fjármálastofnana varðandi lánamál Grindvíkinga.
Virðulegur forseti. Ég vil þakka hv. þm. Þórhildi Sunnu Ævarsdóttur fyrir afar góða og brýna spurningu varðandi þá stöðu sem uppi er í tengslum við Grindavík og afkomu og framtíðarhorfur í lánamálum Grindvíkinga. Ég hef lýst því yfir að ég telji að fjármálastofnanir séu ekki að sýna fulla samfélagslega ábyrgð með því að rukka vexti og verðbætur. Skilaboðin sem Grindvíkingar fengu í síðustu viku voru býsna köld að mínu mati.
Hv. þingmaður spyr hvernig ráðherrann ætli að beita sér. Stjórnvöld eru núna í samtali við fjármálastofnanir og ég geri fastlega ráð fyrir því að við munum sjá aðgerðir í þessari viku sem munu benda til þess og vera þess háttar að fjármálastofnanir munu sýna fulla samfélagslega ábyrgð. Nú er það svo að fjármála- og efnahagsráðherra fer með þessi mál í ríkisstjórninni. Hins vegar fer ég með neytendamálin og sjáum við ekki frekari aðgerðir núna á allra næstu dögum verðum við auðvitað að grípa til þeirra ráða sem við höfum hér. Ég útiloka ekki að það verði bara býsna hressilegt.